Category: Annað

  • Hvað enskir kennarar vita sem við vitum ekki enn

    Ég hlustaði nýlega á viðtal við aðila sem er í lykilhlutverki í skólamálum í Englandi. Hann sagði eitthvað sem ég er búin að hugsa mikið um: í dag hittir maður varla nýútskrifaðan kennara þar í landi sem hefur ekki lært um hugrænt álag (e. cognitive load) og mikilvægi virkrar upprifjunar (e. retrieval practice) og skipuleggur…

  • Af hverju leysir annar jöfnu á 30 sekúndum en hinn gefst upp?

    Tveir nemendur sitja yfir sömu jöfnunni. Annar leysir jöfnuna á 30 sekúndum, en hinn gefst upp. Munurinn á milli þeirra liggur ekki í greind, heldur í því hvað er nú þegar til staðar í langtímaminni þessara tveggja nemenda. Menntakerfið þarf að sjá til þess að nemendur læri, en til þess er mikilvægt að vita hvernig…

  • Er til fólk sem er á móti gagnreyndum kennsluaðferðum?

    „Ha!? Er til fólk sem er á móti gagnreyndum aðferðum í kennslu?!“ Þetta var svarið sem ég fékk í fjölskylduboði um daginn, þegar ég nefndi í framhjáhlaupi að flestir sem koma að kennslu á Íslandi séu í raun á móti gagnreyndum kennsluaðferðum sem rannsóknir sýna að skili mestum námsárangri. Fjölskyldumeðlimurinn hélt áfram: „Ég vil að skattpeningunum mínum…

  • Eitt leyfisbréf, ein stór mistök

    Aðeins fjórðungur þeirra sem kenna stærðfræði í grunnskólum á Íslandi hefur sérhæft sig í faginu. Hvernig í ósköpunum gerðist það? Þann 30. júní sl. kom frétt frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu varðandi könnun sem ráðuneytið gerði á sérhæfingu kennara í grunnskólum landsins. Niðurstöður könnunarinnar voru sláandi: Aðeins um fjórðungur þeirra sem kenna stærðfræði (24%) og náttúrugreinar (26%) er…

  • Aldur eða fjölbreytni námsefnis og gæði

    Tvær fullyrðingar hafa heyrst aftur og aftur í umræðunni um námsefni síðustu vikur: „Það þarf að bjóða upp á fjölbreyttara námsefni.“ „Námsbækur barna eru búnar til löngu áður en mamma og pabbi fæddust.“ Báðar hljóma sakleysislega. En báðar missa marks af nákvæmlega sömu ástæðu: þær mæla námsefni á röngum kvarða. Spurningin á ekki að vera…

  • Dótadagar, sígarettur og símafrí

    Þegar ég var sjálf í grunnskóla voru stundum dótadagar, einu sinni á önn eða ári. Þá mátti maður mæta með uppáhalds dótið sitt, til dæmis bók, spil eða tölvuspil og leika sér með það örstutta stund af deginum. En það hefði aldrei hvarflað að nokkrum kennara eða skólastjórnanda að leyfa börnum að mæta með hvað…

  • Styttum framhaldsskólann í 3 ár

    Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum þá stefnir allt í að skorið verði niður um 7% í fjárframlögum til framhaldsskólastigsins á næstu árum. Það hefur ekki enn komið fram hvaða aðgerðir á að ráðast í til að ná þessari hagræðingu, en ég sé þó eina leið sem blasir við, sem er að stöðva stærstu…

  • Eiga nemendur að þurfa að endurtaka bekk?

    Í vikunni sem er að líða fór ég í tvær skólaheimsóknir til Ítalíu. Þó að það sé alltaf hægt að gúggla hitt og þetta, þá jafnast ekkert á við það að mæta á staðinn og fá góða kynningu og geta spurt áhugaverðra spurninga. Það var hitabylgja, 32°C hiti alla dagana, en það virtist ekki hafa…

  • Á að kenna námstækni í skólum?

    Á að kenna námstækni sérstaklega í skólum?​Ef barn eða unglingur er að byrja að æfa golf, þá finnst okkur sjálfsagt að þjálfarinn skipuleggi æfingar þannig að iðkandinn sé að hámarka árangur sinn. Við myndum aldrei gera ráð fyrir að barnið okkar þyrfti að fara á sérstakt námskeið til að læra hvernig það hámarkar árangur sinn…

  • Námstækni sem minnkar prófkvíða

    Núna fer að styttast í að grunnskólarnir klári. Það eru margir nemendur að fara í próf í komandi viku og vikuna þar á eftir. Því ætla ég að láta þennan pistil fjalla um eitthvað sem getur nýst þínum unglingi til að undirbúa sig fyrir stærðfræðipróf. Ég er búin að skrifa vikulega pistla í rúmlega fimm…

  • Hvernig breytum við viðhorfi kennara?

    Ef við viljum ná árangri í skólakerfinu, þá þurfum við að hætta að rífast og rökræða hvað eigi að gera í skólakerfinu og fara að rýna í hvað rannsóknir segja. Menntakerfið og menntastefna á ekki að snúast um viðhorf og skoðanir. Rannsóknir sem snúa að kennurum Rannsóknir segja okkur að kennarar á Íslandi eru ekki…

  • Röðin skiptir máli

    Hvernig myndi þér líða ef þú ættir að fara að hugsa um eitthvað, sem byggir á einhverju sem þú hefur ekki lært? Það er í tísku að láta nemendur hugsa og vinna þrautalausnir í stærðfræði, sem er nauðsynlegt, svo lengi sem nemendur hafa náð tökum á þeim grunni sem þarf til að geta hugsað og…