Næsta námskeið?

Ef þú vilt fá að vita um leið og ég opna fyrir skráningu á næsta námskeið, skráðu þig þá endilega á Láta vita póstlistann minn fyrir viðeigandi bekk.

Undirbúningur fyrir Matsferil, fyrir nemendur á unglingastigi

Samræmt framvindupróf í Matsferli verður lagt fyriralla nemendur í 9. bekk í mars næstkomandi. Skólarnir þurfa að leggja prófið fyrir einhvern tímana á tímabilinu 2. til 27. mars.

Einhverjir skólar hafa ákveðið að leggja þetta samræmda próf fyrir alla nemendur á unglingastigi. Þetta námskeið er hugsað fyrir nemendur á unglingastigi sem munu taka þetta próf.

Sendu mér tölvupóst á hjalp@staerdfraedi.is ef þú vilt vita meira um þetta námskeið.

Láta vita póstlisti: nemendur á leið í 10. bekk

Lokaeinkunn í stærðfræði í 10. bekk skiptir miklu máli varðandi inntöku í framhaldsskóla. Það getur munað litlu á milli C+ og B sem lokaeinkunn í 10. bekk, en varðandi inntöku í framhaldsskóla er munur á milli þessara bókstafa mikill. 4 vikna námskeið þar sem farið er ítarlega í vel valið efni sem nauðsynlegt er fyrir nemendur í 10. bekk að ná mjög góðri færni í. Smelltu hér til að skrá þig á Láta vita póstlistann fyrir 10. bekk.

Láta vita póstlisti: nemendur á leið í 9. bekk

4 vikna námskeið fyrir nemendur sem vilja byggja upp góðan grunn í stærðfræði og um leið læra að tileinka sér stærðfræði viðhorf, þjálfa þrautseigju, auka sjálfstraust o.fl. Daglegir póstar til að hvetja nemendur áfram. Smelltu hér til að skrá þig á Láta vita póstlistann fyrir 9. bekk.

Láta vita póstlisti: nemendur á leið í 8. bekk

“Unglingurinn minn var góður í stærðfræði þar til í 8. bekk” er eitt af því algengasta sem ég heyri. Ekki láta þetta henda þinn ungling þetta er hægt að fyrirbyggja með góðum undirbúningi þar sem nemendum er kennt að tileinka sér stærðfræði viðhorf – 4 vikna námskeið. Smelltu hér til að skrá þig á Láta vita póstlistann fyrir 8. bekk.

Láta vita póstlisti: nemendur á leið í 7. bekk

Tveggja vikna námskeið fyrir nemendur í 7. bekk sem vilja styrkja grunninn í stærðfræði og læra að tileinka sér stærðfræði viðhorf, ásamt námstækni. Daglegir hvatningarpóstar og mikið fjör! Smelltu hér til að skrá þig á Láta vita póstlistann fyrir 7. bekk.