Dótadagar, sígarettur og símafrí

Þegar ég var sjálf í grunnskóla voru stundum dótadagar, einu sinni á önn eða ári. Þá mátti maður mæta með uppáhalds dótið sitt, til dæmis bók, spil eða tölvuspil og leika sér með það örstutta stund af deginum. En það hefði aldrei hvarflað að nokkrum kennara eða skólastjórnanda að leyfa börnum að mæta með hvað sem er og hvenær sem er. Það var sjálfgefið að einhver mörk þyrftu að vera á því.

En stundum kemur eitthvað inn í skólana án þess að við gerum okkur grein fyrir því. Þá verðum við að vera nógu gáfuð að staldra við og bakka.

Dótadagar, sígarettur og símafrí
Mynd unnin af mér í samstarfi við Claude spunagreins

Við gerðum það til dæmis með sígaretturnar. Einu sinni þótti sjálfsagt að grunnskólanemendur reyktu fyrir utan aðalinngang skólanna og kennarar reyktu á kennarastofunni. Svo áttuðum við okkur á því að þetta væri einfaldlega ekki í lagi. Þá bökkuðum við og settum reglur. Núna myndi ekki hvarfla að nokkrum nemanda að reykja sígarettu fyrir utan grunnskólann eða kennara að reykja sígarettu inni á kaffistofu.

Þegar við vitum betur, gerum við betur.

En hvað með símann?

Ef við hefðum fengið tíma til að hugsa, sjá fyrir þessa þróun með símana og meta hvort og þá með hvaða hætti þeir styddu við skólastarfið, þá hefði það ekki hvarflað að nokkrum manni að leyfa hverju einasta barni í grunnskóla að ganga um með svona tæki á sér allan skóladaginn, alla skóladaga. Tæki sem getur tekið myndir og myndbönd af hverjum sem er, virkað eins og spilavíti í vasanum, sýnt skaðlegt efni og verið vettvangur eineltis hvenær sem er sólarhringsins.

Við erum með aldurstakmörk á tölvuleikjum og kvikmyndum, því við fengum tíma til að staldra við, meta áhrif og setja viðeigandi aldurstakmörk.

Þetta er það sem kalla má aðlögunartækni (e. adoption technologies): tækni eða fyrirbæri sem fær að koma inn í skólana eftir að við höfum fengið tækifæri til að staldra við og meta hvort og með hvaða hætti hún eigi þangað erindi. Andstæðan er komutækni (e. arrival technologies): eitthvað sem læðist inn án þess að við tökum eftir því, og áður en við vitum af er það komið inn í skólana og farið að hafa mikil áhrif.

Síminn er einmitt það sem kalla má komutækni. Hann bara birtist. Hann laumaði sér inn í skólana, og stuttu seinna fylgdu samfélagsmiðlarnir, án þess að við næðum nokkurn tíma að staldra við og spyrja: viljum við heimila að nemendur séu með svona tæki í skólanum?

Það er ekki eðlilegt að nemendur gangi um með tæki á sér sem er svo spennandi að það truflar þá sjálfa, samnemendur þeirra og alla kennslu.

Ég var fyrst með bannið en met aðstæður

Ég kenni í framhaldsskóla og var fyrsti kennarinn í mínum skóla til að banna síma í kennslustundum. Allir símar fóru í box við upphaf kennslu. Margir nemendur voru verulega ósáttir og samkennarar mínir voru hissa, fæstir tilbúnir að fara þessa leið.

Ég met samt sem áður alltaf aðstæður. Ég hef haft nemendur sem þurftu sökum veikinda að hafa símann hjá sér og stundum hafa nemendur fengið leyfi til að hafa hann í einn tíma af gildri ástæðu. Reglur eru til að gefa okkur viðmið að vinna eftir, en við metum alltaf aðstæður og bregðumst við þegar þarf.

Núna nokkrum árum síðar eru flestir framhaldsskólar komnir með einhverja útfærslu af símabanni í kennslustundum og nemendur sem koma úr grunnskóla er ekki lengur hissa yfir símabanni í framhaldsskólum, þar sem flestir eru orðnir vanir því að einhverjar takmarkanir hafi verið á tækjunum í þeirra gamla skóla.

Símafrí í grunnskólum

Nú liggja fyrir drög að reglugerð sem festir símafrí í grunnskólum í sessi. Í stuttu máli fela reglurnar í sér:

  • Notkun síma og snjalltækja sem ekki eru í eigu eða umsjá skóla er óheimil á skólatíma.
  • Tæki í eigu eða umsjá skóla skal eingöngu nota í kennslufræðilegum tilgangi eða vegna stuðningsþarfa nemenda.
  • Tæki nemenda skulu ekki vera aðgengileg á skólatíma, heldur geymd á fyrirfram ákveðnum stað t.d. í skápum, hólfum eða geymslukössum og hver skóli mótar sér reglur um hvernig það er gert.

Ég er hlynnt þessu og ég er sérstaklega hlynnt því að ákvörðunin sé tekin miðlægt en ekki lögð á herðar hvers einasta skólastjórnanda. Það er réttur allra nemenda að fast sé tekið á þessu og það á ekki að vera undir hverjum skólastjórnanda komið hvort yfirleitt eigi að setja mörk.

Það eru nokkrir aðilar á móti þessum miðlægu reglum að ofan. Formaður KÍ vill frekar að við kennum nemendum að umgangast símana. Einn skólastjórnandi vill að honum sé treyst fyrir að meta hvort það þurfi að banna símana eða ekki og honum finnst óþarfi að vera með þessar ströngu reglur. Þessi sami skólastjórnandi sagðist ekki geta séð hvernig væri hægt að útfæra þetta símafrí. En þá er gott að líta norður.

Fyrir tveimur árum var komið á símabanni í grunnskólum á Akureyri. Núna eru skólar þar með skilvirkar og góðar leiðir til að framfylgja banninu. Einn skóli útfærði þetta á frábæran hátt að mínu mati: nemendur setja símana í læst símahólf í upphafi dags og fá þá afhenta í lok dags. Nemendur setja sjálfir símana sína í þessi litlu hólf, sem þeir geta bara sett símana í hólfið, en ekki tekið þá út. Ef skólar fyrir norðan geta þetta, þá bendi ég þeim sem sjá ekki hvernig sé mögulegt að útfæra þetta, að fá ráð hjá þeim sem þegar eru búnir að útfæra þetta símabann í tvö ár.

Símar eru truflun

Í árlegri kennslukönnun í mínum framhaldsskóla kom í ljós að nemendur eru ósáttir við þá kennara sem taka ekki fast á símabanninu. Þeim finnst nefnilega truflandi að sjá samnemendur í símanum á meðan þeir reyna sjálfir að einbeita sér.

Kannski hefur þú verið í svipuðum aðstæðum, til dæmis á fundi, þar sem einhver var í símanum. Það er truflandi og það er vanvirðing, bæði fyrir þann sem heldur fundinn og alla hina á fundinum.

Börnin okkar eiga skilið kennslustundir þar sem þau fá að einbeita sér í friði. Við vitum það núna, þá bökkum við og gerum betur.

PS.
Hérna er pistill sem ég skrifaði í febrúar 2024, þegar ég var búin að hafa símabann í 7 vikur, aðdragandanum og svo hvernig gekk: https://staerdfraedi.is/simalausir-staerdfraeditimar/

Hérna er pistill sem ég skrifaði frá mars 2025, um ávinnig af símabanninu og rannsókn sem snýr að símatruflun: https://staerdfraedi.is/simabann-i-skolum/


Posted

in

by

Tags: