Grundvallarstefna við vinnslu persónuupplýsinga

Það er markmið stærðfræði.is að öll vinnsla persónuupplýsinga sé í samræmi við nýja löggjöf Evrópusambandsins
um persónuvernd og vinnslu upplýsinga, hér eftir nefnt GDPR.
Öll kerfi sem stærðfræði.is notar til þess að skrá og geyma upplýsingar
uppfylla kröfur sem nefndar eru í GDPR.

Söfnun og meðhöndlun persónuupplýsinga hjá notendum og viðskiptavinum

Stærðfræði.is safnar þeim upplýsingum um viðskiptavini sína
sem er skylt að geyma í samræmi við bókhaldslög og reglur.

Stærðfræði.is safnar persónuupplýsingum um notendur og viðskiptavini sína í þrennskonar tilgangi:
– til að veita þeim aðgang að réttri vöru og þjónustu og til að veita sem besta þjónustu
– til að veita þeim fræðandi og ganglegar upplýsingar
– til að miðla upplýsingum til viðskiptavina í markaðslegum tilgangi.

Stærðfræði.is safnar einungis upplýsingum sem nauðsynlegar eru til þess að veita
sem besta þjónustu til viðskiptavinar.
Ef þessar upplýsingar eru ekki veittar, þá getur verið að stærðfræði.is geti ekki
veitt viðskiptavinum þá þjónustu sem þeir óskar eftir.

Miðlun persónuupplýsinga

Stærðfræði nýtir ekki persónuupplýsingar í öðrum tilgangi en þeim sem þær voru safnaðar fyrir.

Stærðfræði.is miðlar ekki persónuupplýsingum til þriðja aðila.
Stærðfræði.is skráir og geymir gögn frá notendum og viðskiptavinum í kerfum frá þriðja aðila.
Öll umrædd kerfi styðja lög og reglugerðir GDPR.

Öryggi gagna

Stærðfræði.is leggur áherslu á að tryggja að varðveislu persónuupplýsinga sé háttað á öruggan máta.
Öll samskipti í gegnum vef stærðfræði.is eru dulkóðaðar
og öll kerfið frá þriðja aðila sem notuð eru til að skrá upplýsingar um notendur og viðskiptavini uppfylla skilyrði GDPR.

Uppfært 29. mars 2021