
Ég hef kennt stærðfræði bæði á netinu og á framhaldsskólastigi frá árinu 2013. Frá þeim tíma hef ég stöðugt leitað leiða til að bæta kennsluna mína og undanfarin ár hef ég kafað djúpt í rannsóknir á námi og kennslu. Kennslan mín byggir í dag á raunprófuðum kennsluaðferðum sem eiga sér meðal annars stoð í hugrænni sálfræði og taugavísindum.
Það þýðir meðal annars að ég legg áherslu á:
Skýra og skipulagða kennslu
Rannsóknir sýna að bein kennsla er áhrifaríkari en uppgötvunarnám, þegar nemendur eru að læra nýtt efni. Það skiptir máli að kenna í litlum skrefum og að nemendur skilji hvað þeir eru að gera.
Þjálfun í grunnfærni
Eftir að nemendur hafa náð tökum á afmarkaðri grunnfærni, þá er mikilvægt að nemendur fái tækifæri á að þjálfa þá fimi. Markmiðið er að geta unnið fumlaust í gegnum verkefnin og ná upp ákveðinni sjálfvirkni til að minnka álag á vinnsluminnið þegar nemendur takast á við erfiðari verkefni.
Endurheimt úr minni
Eftir að nemendur hafa þjálfað upp grunnfærni, þá er mikilvægt að nemendur fái tækifæri til að rifja upp það sem þeir hafa lært, til að festa enn betur það sem þeir hafa lært í langtímaminnið.
Virkni heilans
Það er mikilvægt að nemendur séu meðvitaðir um hvaða námsaðferðir virka (eru raunprófaðar), læri að beita sjálfsstjórn t.d. með því að skipuleggja tímann sinn á námskeiðinu og læra allt sem þeir þurfa að vita um virkni heilans.
Áhugahvöt til náms
Það eru til raunprófaðar aðferðir til að auka áhugahvöt nemenda í námi. Ég beiti þeim aðferðum markvisst á námskeiðunum. Það felst ekki í því að gera námið skemmtilegt, heldur er stór þáttur í því að nemendur sjái hlutlægt að þeir séu að ná árangri og að bæta sig.
Öll geta lært stærðfræði og öll geta orðið góð í stærðfræði, en það gerist ekki af sjálfu sér. Nemendur þurfa raunprófaðar kennsluaðferðir ásamt stuðningi. Námskeiðin mín eru hönnuð til að veita nemendum einmitt það: vel uppbyggða og skýra kennslu, tækifæri til að þjálfa upp fimi, læra um virkni heilans og hvernig við lærum. Síðast en ekki síst hafa nemendur greiðan aðgang að mér á meðan námskeiðinu stendur.
Ég er með B.Ed. gráðu í kennslufræðum, með stærðfræði og náttúrufræði sem aðalfög, og hef kennsluréttindi (leyfisbréf) sem bæði grunn- og framhaldsskólakennari. Auk þess er ég með B.Sc. í tölvunarfræði og M.A. í mannauðsstjórnun. Ég hef einnig tæplega áratuga stjórnunarreynslu úr hugbúnaðargeiranum og nokkurra ára kennslureynslu úr bandarískum grunnskóla.
Samfara því að kenna í stærðfræði í framhaldsskóla og á netinu, er ég nemandi á Menntavísindasviði Háskóla Íslands og hef síðustu ár verið að taka nokkur námskeið á hverju skólaári til að auka við þekkingu mína og styrkja mig sem stærðfræðikennara.
Ef þú vilt fá upplýsingar um næstu námskeið skráðu þig þá á póstlista stærðfræði.is
