Category: Annað
-
Vafasamt sjálfstraust í stærðfræði
Ég sit hjá einum nemanda og við erum að fara í gegnum dæmi sem hann á í erfiðleikum með. Ég þarf nánast að leiða hann í gegnum allt dæmið. Þegar svarið er komið, þá segir nemandinn fullur sjálfstrausts „ég held ég sé bara kominn með þetta!“ og þessi nemandi upplifir sig tilbúinn að fara í…
-
Bókstafseinkunnir ekki í samræmi við þekkingu
Ég hef verið að kenna stærðfræði í framhaldsskóla í mörg ár. Staðreyndin er þessi: tveir nemendur koma til mín með nákvæmlega sömu einkunn (í bókstaf) í stærðfræði úr grunnskóla, en grunnur þeirra í stærðfræði og geta gæti ekki verið ólíkari. Samt sem áður eru þeir skráðir í sama áfanga í framhaldsskóla. Í dag fer það…
-
PISA, Finnland og íslenski draumurinn sem er ekki að rætast
Í meira en tvo áratugi hafa menntamálayfirvöld um allan heim farið í pílagrímsferðir til Finnlands. Þau vilja sjá með eigin augum hvernig Finnar gera það, hvað leynist á bak við eitt af „bestu menntakerfum heims“. Vandinn er bara sá að þetta menntakerfi sem allir eru að dást að, er ekki til. Það var aldrei til,…
-
Kennslufræðin í Poject Hail Mary myndinni
Ég fór í bíó á föstudaginn langa, sá myndina Project Hail Mary. Það var uppselt á myndina, góð stemming, frábær mynd. Ég þarf ekki að vera með neina höskuldarviðvörun (spoiler alert), því ég er ekki að fara að fjalla um myndina almennt einungis út frá kennslufræðilegu sjónarhorni. Aðalpersónan er náttúrufræðikennari, Dr. Grace, að kenna sirka…
-
Af hverju nenna sumir að læra stærðfræði
Ég er búin að kenna stærðfræði á framhaldsskólastigi í kennslustofu í tæp 15 ár. Nemendur eru jafn ólíkir og þeir eru margir, en það er alltaf ákveðinn hluti nemenda sem virðist finnast gaman að læra stærðfræði. Þetta eru nemendur sem mæta tímanlega í tíma, taka strax upp bækurnar, vita nákvæmlega hvert þeir eru komnir og…
-
Kennsluaðferð: tíska eða vísindi
Eftir að ég byrjaði í náminu mínu í HÍ, þá hef ég mikið verið að velta fyrir mér raunprófuðum kennsluaðferðum. Það eru til óháðar stofnanir sem halda utan um raunprófaðar kennsluaðferðir sem skila árangri, en það getur verið erfitt að átta sig á hvort á ákveðin kennsluaðferð falli þar undir. Kennsluaðferðin hugsandi skólastofa er mjög…
-
Mikilvægi fimiþjálfunar
Vissir þú að samkvæmt aðalnámskrá grunnskólanna, þá er ekki gert ráð fyrir að nemendur sem ná B eða B+ í stærðfræði þjálfi upp fimi (fluency) í stærðfræði. Það er aðeins undir hæfniviðmiðum A að hafa náð einhverri fimi. Í aðalnámskránni eru notuð orðin af öryggi og á fumlausan hátt í því sambandi. Ég veit ekki með þig, en mér…
-
Árhif góðrar bekkjarstjórnunar
Fyrsti hundurinn minn, hún Perla mín, kom á heimilið þegar ég var 10 ára. Hún var fyrirmyndar hundur sem þurfti nánast ekkert að ala upp og ekkert að hafa fyrir. Ég fór með hana út um allt, jafnvel á staði sem hún mátti ekki vera.Næsti hundur var Blíða, dvergschnauzer sem kom á heimilið þegar ég…
-
Getuskipting í stærðfræði
Þegar ég var í 9. bekk (sem í dag er 10. bekkur) þá var smá uppákoma inn í tíma sem varð til þess að kennarinn flúði. Nokkrum mínútum seinna kom Óli skólastjóri inn, með kladdann (bekkjarlistann með mætingum) í höndunum og renndi puttanum sínum yfir nöfnin og sagði svo öskureiður „Gyða og Ívar, þið mætið með B-bekknum frá og með morgundeginum”. Ég skal…
-
Hvers vegna er unglingurinn stopp?
Hefur þú einhvern tíma heyrt unglinginn þinn segja „ég skil þetta ekki“, þrátt fyrir að vera búinn að stara á efnið í kennslubókinni í margar mínútur? Ástæðan gæti verið önnur en þú heldur.Ég er núna að taka námskeið á Menntavísindasviði við Háskóla Íslands og er að læra um hugrænt álag (cognitive load), sem er álag…
-
5 raunprófaðar aðferðir
Fyrir tveimur vikum skrifaði ég um þrjár raunprófaðar námstækniaðferðir, sem nemendur ættu að tileinka sér í stærðfræði ef þeir vilja virkilega læra, en ekki bara þykjast vera að læra. Í kjölfarið fékk ég fjöldan allan af póstum frá foreldrum sem voru að spyrja hvernig væri best að læra í öðrum fögum, þar sem yfirstrikun og…
-
Að þykjast læra
Ég var að þvælast á Háskólasvæðinu eitt kvöld, hafði klukkutíma til að drepa og ákvað að nýta tímann og lesa eina fræðigrein. Ég fór inn í VR-II, sem er húsnæði sem ég þekki vel frá því ég var að læra tölvunarfræði, fann laust hringborð frammi á gangi á annari hæðinni, skellti á mig heyrnartólum og…
