Mikilvægi fimiþjálfunar

Vissir þú að samkvæmt aðalnámskrá grunnskólanna, þá er ekki gert ráð fyrir að nemendur sem ná B eða B+ í stærðfræði þjálfi upp fimi (fluency) í stærðfræði. Það er aðeins undir hæfniviðmiðum A að hafa náð einhverri fimi. Í aðalnámskránni eru notuð orðin af öryggi og á fumlausan hátt í því sambandi.

mikilvægi fimiþjálfunar


Ég veit ekki með þig, en mér finnst það galið. Mér finnst að nemendur eigi ekki að geta fengið B nema hafa náð að þjálfa upp ákveðna fimi til að leysa dæmi. Varðandi nemendur sem eiga að fá A, þá finnst mér að þeir nemendur eigi að fara meira á dýptina.

Rannsóknir sýna að fimiþjálfun í stærðfræði er mikilvæg og skiptir sérstaklega máli fyrir þá sem standa höllum fæti í stærðfræði. Þegar aðalnámskráin gerir ekki ráð fyrir fimiþjálfun, þá er hún um leið að segja að kennsluaðferðir eigi að miðast við þá sem eru meðal eða sterkir námslega, en ekki fyrir þá sem þurfa meiri stuðning.

Rannsóknir staðfesta að ástæða þess að nemendur standa höllum fæti í stærðfræði, sé vegna skorts á fimiþjálfun (Martens o.fl. 2021).


Hvað er fimiþjálfun (precision teaching)? 
Til að byrja með skiptir máli að ná tökum á færninni sem veri er að kenna. Þannig að í upphafi er nemandinn að einbeita sér að fjölda réttra svara (þjálfa nákvæmni). En þegar nemandinn hefur náð tökum á efninu þá er hægt að þjálfa upp hraða. Samkvæmt fræðunum þá er fimiþjálfun markviss leið til að hraða námi þannig að við hjálpum nemendum að flýta fyrir að ná tökum á ákveðnum grunnþáttum. Þegar kemur að stærðfræði, þá skiptir máli að þjálfa nemendur í fimi sem tengist grunnreikniaðgerðunum fjórum: samlagningu, frádrætti, margföldun og deilingu.

Samkvæmt heimildunum er fimi (fluency) skilgreind sem „flæðandi samsetning nákvæmni og hraða“ sem einkennir góða færni. Þegar nemendur fá tækifæri til að þróa með sér fimi umfram það að vera einungis nákvæmir, hefur það í för með sér víðtækan ávinning fyrir nám þeirra og getu til að takast á við flóknari verkefni.

Hvernig fer fimiþjálfun fram?
Yfirleitt eru þetta mínútu löng verkefni sem lögð eru fyrir nemendur, þar sem verið er að þjálfa afmarkaða þætti. Niðurstaðan er síðan skráð og markmið hvers nemanda, er að gera betur í hvert sinn.


En hvað græðum við á að gefa nemendum tækifæri á að þjálfa upp fimi?
Helsti ávinningur þess að ná fimi er dreginn saman í fimm lykilatriðum (oft nefnd með skammstöfuninni RESAA í heimildunum):

  • Viðhald (Retention): Nemendur sem ná fimi eru líklegri til að viðhalda færninni yfir lengri tíma, jafnvel þótt hún sé ekki æfð reglulega, þar sem hún er komin í langtímaminnið.
  • Úthald (Endurance): Fimi gerir nemendum kleift að beita færninni yfir lengri tímabil án þess að þreytast eða missa einbeitingu. Þessir nemendur hafa því betra úthald þegar þeir takast á við flóknari dæmi í kennslustundum, heimaverkefnum og prófum.
  • Stöðugleiki (Stability): Nemendur sem hafa þjálfað upp fimi finna fyrir minni truflun frá umhverfinu, eins og hávaða í skólastofu.
  • Hagnýting (Application): Þegar verkefnin verða flóknari, þá er nauðsynlegt að búa yfir fimi í grunnþáttum sem flóknu verkefnin byggja á.
  • Sjálfsprottin ný færni (Adduction): Nemendur sem hafa náð að þjálfa upp fimi, geta komið auga á og leyst flókin verkefni án þess að hafa fengið kennslu í því efni, vegna þess að þeir hafa náð góðri fimi í grunnþáttunum.

Auk þessara þátta eru eftirfarandi ávinningar:

  • Sköpun nýrrar þekkingar (Generative Repertoires): Með því að þjálfa fimi í grunnþáttum (t.d. grunnreikningi) þróa nemendur með sér leikni sem gerir þeim kleift að samþætta lærð viðbrögð á nýstárlegan hátt þegar þeir mæta nýjum kröfum eða áreiti.
  • Betri yfirfærsla (Generalization): Fimi eykur líkurnar á því að nemandinn geti beitt færninni við mismunandi aðstæður, með ólík gögn eða í nýju samhengi.
  • Vörn gegn námslegum mistökum: Heimildirnar benda á að uppsöfnuð „ó-fimi“ (cumulative dysfluency) sé mögulega mikilvægasti einstaki þátturinn í því að nemendum gengur illla í námi til lengri tíma litið. Með því að tryggja fimi strax í upphafi er verið að flýta námsferlinu og leggja sterkan grunn að frekara námi.
  • Hraðara nám: Kerfi sem leggja áherslu á fimi, hafa sýnt fram á að nemendur geta tekið stórstígum framförum á skömmum tíma (t.d. hækkað um mörg skólastig í lestri á einu ári) með markvissri fimiþjálfun

Fimiþjálfun er ekki “drill and kill” hún er gagnreynd aðferð til að byggja upp grunnfærni sem gerir nemendum kleift að takast á við flóknari verkefni síðar.

Bestu kveðjur,
Gyða stærðfræðikennari
hjá stærðfræði.is​

Heimild
Martens, B. K., Daly, E. J., III, Begeny, J. C., og Sullivan, W. E. (2021). Behavioral approaches to education. Í W. W. Fisher, C. C. Piazza og H. S. Roane (ritstj.), Handbook of applied behavior analysis (3. útg., bls. 445–462). The Guilford Press.


Posted

in

by

Tags: