Category: Annað
-
Að spara í menntun
Skólakerfið á Íslandi, er að mínu mati, rekið með þá hugsjón að mennta sem flesta nemendur fyrir sem minnstan pening. Það er meðal annars ástæðan fyrir að nemendur með greiningar fá ekki þá aðstoð sem þeir þurfa í grunnskólum. Stytting framhaldsskólans og svo væntanleg sameining framhaldsskólanna eru einnig augljós merki um sömu hugsjón. En hver er…
-
Hvenær er besti tíminn?
Nú þegar tæplega tveir mánuðir eru eftir af skólaárinu, þá eru eflaust einhverjir sem hugsa að það sé of stuttur tími til að ná tökum á stærðfræði. Það gæti vissulega verið rétt ef nemandinn stendur mjög höllum fæti í stærðfræði og eina markmiðið er að standa sig vel í næsta prófi eftir viku. En hvað…
-
Bætingapróf
Tíminn flýgur og áður en við vitum af er komið vor. Það þýðir að ef þú átt ungling í grunnskóla, þá er farið að styttast í annan endann á skólaárinu. Það þýðir líka að ef þú átt ungling í 10. bekk, þá er núna rétti tíminn til að skoða hvort að þinn unglingur ætti að…
-
Listin að drepast úr leiðindum
Flest nám krefst einbeitingar, sérstaklega nám eins og stærðfræði. En staðreyndin er sú að nemendur eiga mun erfiðara núna en áður með að einbeita sér. Fyrir tíu árum þótti lúxus að fá að horfa á bíómynd í kennslustund, í dag er það kvöl og pína fyrir flesta nemendur að þurfa að þrauka út eina bíómynd.…
-
Besti framhaldsskólinn?
Ef þú átt ungling í 10. bekk, þá er hann þessa dagana líklega að velta fyrir sér hvaða framhaldsskóla hann eigi að sækja um í. Margir framhaldsskólar á höfuðborgarsvæðinu hafa verið með kynningar á sinni starfsemi og einhverjir skólar verða með kynningar í apríl. En stóra spurningin er líklega, hvaða framhaldsskóli er bestur fyrir þinn…
-
Dagur stærðfræðinnar
Dagur stærðfræðinnar var í vikunni sem leið og eins og í fyrra gafst mér kostur á að hitta nokkur hundruð krakka og tala við þá um stærðfræði. Ég hef marg oft hitt unglinga og rætt við þá um stærðfræði, en þetta er í fyrsta skipti sem ég tala um stærðfræði við nemendur allt niður í…
-
Hugsandi kennslustofa
Stærðfræðikennslan hefur almennt ekki mikið breyst í grunn- og framhaldsskólum síðustu ár. Flestir kennarar eru með einhverja innlögn á töflu fyrir alla nemendur og ganga síðan á milli til að aðstoða, en þó er líka algengt að nemendur hafi aðgang að kennslumyndböndum og nota stærðfræðitímana í að fá aðstoð frá kennara. En það er ný…
-
SamSTEM
Síðasta föstudag, var starfsþróunardagur í framhaldsskólum landsins. Stærðfræðikennararnir hittust í gamla skólanum mínum, Menntaskólanum í Reykjavík, þar sem við bárum saman bækur, hlustuðum á áhugaverða fyrirlestra og ræddum um allt sem tengist stærðfræði og stærðfræðinámi. Ein af fyrirlesurum á þessum degi var Bjarnheiður Kristinsdóttir, lektor við Háskóla Íslands. Hún kynnti SamSTEM verkefnið, sem er samstarfsverkefni HÍ,…
-
Viðtal hjá kennara
Eins og ég hef skrifað um áður, þá var gerð könnun vorið 2019, og svo unnin skýrsla sem kom svo út árið 2020 á vegum Mennta- og menningarmálaráðuneytisins, til að meta hvernig innleiðing á nýrri aðalnámskrá grunnskólanna hefði gengið. En í þeirri námskrá var einmitt farið frá því að meta árangur nemenda út frá einkunnum…
-
Símar í stærðfræðitímum
Ég hef verið að kenna stærðfræði á framhaldsskólastigi frá árinu 2013, en hef einnig reynslu af kennslu á unglingastigi grunnskóla áður en símarnir urðu allsráðandi. Það hvarflaði ekki að mér fyrstu árin að banna síma í tímum. Ég fann að fyrir flesta nemendur þá var gott að geta hlustað á tónlist til að minnka áreiti…