fbpx

Nýjustu greinarnar

  • Ef markmiðið hans er B, hvað er þá mitt markmið?

    Átt þú ungling sem stendur höllum fæti í stærðfræði og langar til þess að ná góðum tökum á stærðfræði? Ef svo er, hvaða merkingu setur hann í að ná góðum tökum á stærðfræði og hvers vegna langar hann að ná góðum tökum á stærðfræði?​Yfirleitt langar nemanda til að ná tökum á stærðfræði, af því að hann…

  • Símat í stærðfræði

    Ég hef verið að kenna stærðfræði á framhaldsskólastigi í rúman áratug. Í þeirri kennslu hef ég meðal annars kennt nemendum sem ná ekki stærðfræði í grunnskóla. Í gamla kerfinu voru það nemendur sem náðu ekki 5 í einkunn og í bókstafakerfinu eru það nemendur sem ná ekki B í einkunn. Það hefur margt breyst í…

  • Hvað getur þinn unglingur?

    Námsleg geta nemenda er oft metin út frá greiningum (ADHD, lesblindu,…) eða fyrri sögu nemanda úr skólagöngu eins og einkunnum. Þegar það er gert er oft verið að “stimpla” nemendur og jafnvel draga úr námslegri getu nemenda. Margir nemendur fá oft aðlagað efni í stærðfræði án þess að þeir séu spurðir um leyfi eða geri…

  • Reyna eða sýnidæmi?

    Þessa dagana er ég að lesa bækur og rannsóknir sem snúa að því hvernig sé best að kenna nemendum ákveðið efni. Þær rannsóknir sem ég hef verið að skoða síðustu daga snúa að því að kanna hvort að það sé betra að láta nemendur reyna fyrst við dæmi og fá síðan að sjá hvernig dæmið…

  • Stærðfræðipróf

    Þessa dagana og næstu vikur eru flestir nemendur í grunnskólum að taka próf. Einnig eru margir 10. bekkingar að taka lokapróf og jafnvel bætingapróf. Samkvæmt reynslu, þá flokka ég nemendur í fjóra flokka, þegar kemur að þeirra nálgun í því að undirbúa sig fyrir stærðfræðipróf. Í fyrsta flokknum eru nemendur sem halda að það sé ekki hægt…

  • Danska skólakerfið

    Við erum alltaf að bera okkur saman við hin Norðurlöndin þegar kemur að menntamálum. Það er mjög gott, en þá er líka mikilvægt að skoða alla þætti en ekki grípa eitthvað eitt í lausu lofti og yfirfæra það á Ísland. Gott dæmi um það er t.d. stytting framhaldsskólans. Við Íslendingar styttum framhaldsskólann svo hann væri…

  • Hvernig er best að bregðast við

    Þegar ég var í menntaskóla, þá var ég með íslenskukennara sem brást öðruvísi við en aðrir kennarar, þegar það var mikill hávaði og skvaldur í tímum. Í stað þess að hækka róminn til að ná til nemenda þannig, þá lækkaði og lækkaði hann róminn, þar til að hann nánast hvíslaði. Það varð til þess að…

  • Að spara í menntun

    Skólakerfið á Íslandi, er að mínu mati, rekið með þá hugsjón að mennta sem flesta nemendur fyrir sem minnstan pening. Það er meðal annars ástæðan fyrir að nemendur með greiningar fá ekki þá aðstoð sem þeir þurfa í grunnskólum. Stytting framhaldsskólans og svo væntanleg sameining framhaldsskólanna eru einnig augljós merki um sömu hugsjón. En hver er…

  • Hvenær er besti tíminn?

    Nú þegar tæplega tveir mánuðir eru eftir af skólaárinu, þá eru eflaust einhverjir sem hugsa að það sé of stuttur tími til að ná tökum á stærðfræði. Það gæti vissulega verið rétt ef nemandinn stendur mjög höllum fæti í stærðfræði og eina markmiðið er að standa sig vel í næsta prófi eftir viku. En hvað…

  • Bætingapróf

    Tíminn flýgur og áður en við vitum af er komið vor. Það þýðir að ef þú átt ungling í grunnskóla, þá er farið að styttast í annan endann á skólaárinu. Það þýðir líka að ef þú átt ungling í 10. bekk, þá er núna rétti tíminn til að skoða hvort að þinn unglingur ætti að…