Nýjustu greinarnar
-
Að kunna 85%
Þegar nemendur eru að æfa sig að reikna, eftir að hafa lesið sýnidæmi eða fylgst með kennara útskýra efni, þá gæti maður haldið að nemendur þyrftu að kunna efnið mjög vel (jafnvel 100%) til að fá sem mest út úr því að reikna dæmin. En svo er ekki. Ef efnið er allt of létt, þá…
-
Hvar í heilanum er efnið?
Þegar við erum að læra stærðfræði, þá er gott að átta sig á því hvernig heilinn virkar. Vinnsluminnið okkar er takmarkað, sem er allt í lagi, svo lengi sem getum sótt ákveðnar upplýsingar án þess að þurfa að hugsa mikið, með því að nýta sjálfvirka kerfi heilans (e. Automatic system). Þegar nemendur læra stærðfræði, þá…
-
Gera það sem við viljum gera
Ef við viljum ná árangri eða gera einhverjar breytingar, þá er vandamálið sjaldnast að við vitum ekki hvernig á að gera það. Það er hægt að gúggla allt og gervigreindin getur líka verið mjög hjálpleg. Ég hef oft sagt að þrautseigja sé lykillinn að árangri í stærðfræði og hef ekki breytt þeirri skoðun minni. En…
-
Velferð og kröfur
Síðasta fimmtudag hlustaði ég á viðtal við Magnús Þór Jónsson, formann Kennarasambandsins, á Speglinum á RÚV (RÚV, 2025). Í þessu stutta viðtali var hann meðal annars að tala um PISA prófin og að það mætti ekki láta þau próf sem lögð væru fyrir á þriggja ára fresti stýra of miklu “og forðast verður að festast…
-
Hvað er markmiðið með æfingunni?
Unglingur A fer í ræktina, hann hitar sig vel upp og fer svo í tækin til að styrkja vöðvana. Hann vill bæta sig svo hann setur markið að taka vel á og vill upplifa tilfinninguna að hann sé að leggja mikið á sig. Síðustu 2-3 skiptin í hverju setti taka verulega á, en hann er…
-
Trú á eigin getu
Fyrsta árið mitt með námskeið á netinu, árið 2013, þá fannst mér ég fyrst og fremst vera að kenna stærðfræði. En í raun var ég stanslaust að finna leiðir til að hvetja nemendur til að vinna í efni námskeiðsins og reyna að smita þá af áhuga á stærðfræði. Strax eftir fyrsta sumarið áttaði ég mig á því…
-
Sumarfrí með lærdómi
Í mars 2013 fékk ég þá hugmynd að búa til 5 vikna námskeið í stærðfræði fyrir nemendur í 10. bekk – nánar tiltekið undirbúa nemendur í 10. bekk fyrir samræmt próf í stærðfræði sem átti að vera um haustið. Meðan ég var að taka upp kennslumyndböndin þá hugsaði ég oft: Er einhver unglingur sem er…
-
Vitsmunaleg skuld
Ég sit inn á skrifstofu heima hjá mér. Ég er að fara fyrir stafsetningarvillur. Ekki sem kennari, ég er bara unglingur og menntaskólanemi. Þetta er eitthvað sem ég geri samt reglulega fyrir pabba minn. Pabbi er formaður í Lionsklúbbi og þarf reglulega að skrifa fundargerðir. Hann er mjög fær á ýmsum sviðum. Hann getur múrað,…
-
Hæfni á kostnað þekkingar
Það eru margar rannsóknir sem benda á að greindarvísitala fólks í þróuðum ríkjum sé að lækka, sem er pínu óhugnanlegt. En ég rakst nýlega á áhugaverða fræðigrein (Oakley o.fl., 2025) sem fjallar um hvað við getum gert í skólakerfinu, sérstaklega grunnskólunum, til að bregðast við þessu. Ein af lykilhugmyndunum er sú að minnið skiptir meira…
-
Engar kröfur besta leiðin?
Haustið 2007 sá ég auglýsta stöðu stærðfræðikennara á unglingastigi. Þetta var staða í nýlegum skóla sem var rétt hjá þeim stað sem ég bjó. Ég var reyndar ekki að leita mér að vinnu þegar ég sé þessa auglýsingu. Ég var nýhætt í krefjandi stjórnunarstarfi og var að undirbúa flutning til Bandaríkjanna. Ég var að mestu…
-
Hugsandi skólastofa
Síðastliðinn þriðjudagsmorgun labbaði ég inni í Árnagarð. Árnagarður er ein af byggingum Háskóla Íslands. Ég var að fara að taka þátt í tveggja daga vinnustofu með Peter Liljedahl sem er höfundur hugsandi skólastofu (e. building thinking classroom). Ég er almennt mjög hrifin af þessari kennsluaðferð sem kennari, en þessi kennsluaðferð hentar ekki öllum nemendum og ég veit…
-
Enginn er eins
Ég sit í stærðfræðitíma, horfi yfir bekkinn og sé að Lúkas er byrjaður að spjalla við sessunaut sinn. Ég veit strax hvað gerðist, hann fékk rangt svar og þá er stærðfræðin ekki lengur skemmtileg. Ég næ að sannfæra flesta nemendur að rannsaka hvað fór úrskeiðis, en Lúkas er ekki þannig. Hann nennir ekki að rannsaka villur. Hann hélt að…
