fbpx

Upprifjun er nauðsynleg

Ég held að flestir nemendur hafi lent í því að finnast þeir kunna eitthvað efni mjög vel í stærðfræði, en svo gleyma þeir öllu sem þeir eru búnir að læra þegar þeir mæta í stærðfræðiprófið.

Þetta er bara eðlilegt og þetta er í samræmi við það hvernig heilinn virkar og hvernig við lærum. Ef þetta er efni sem nemandinn er nýlega búinn að fara yfir, þá þarf nemandinn samt sem áður að undirbúa sig markvisst fyrir prófið til þess að koma í veg fyrir að hann gleymi öllu sem hann er búinn að læra.

Upprifjun er nauðsynleg

Það sem ég mæli sérstaklega með er að fara í gegnum efnið sem er til prófs og búa til svindlmiða. Þessi miði er ekki eitthvað sem nemendur mæta með í tíma, heldur er fyrst og fremst til upprifjunar og til þess að setja á eitt blað allt sem unglingnum finnst hann þurfa að muna fyrir prófið. Ef unglingurinn þinn vill læra að gera góðan svindlmiða, þá hef ég skrifað um það áður hér.

Ef unglingurinn þinn hefur nokkra daga til að undirbúa sig undir prófið, þá mæli ég með því að hann fari markvisst í gegnum allt efnið og reikni valin dæmi. Ég hef skrifað um það áður hvernig sé best að gera það hér.

Markmið mitt með þessum pósti er að þú látir unglinginn þinn vita af því, að það er ekki eingöngu nóg að skilja allt efnið í stærðfræði, á meðan hann er að fara í gegnum efnið í skólanum. Heldur er einnig nauðsynlegt og algjört lykilatriði að unglingurinn rifji upp efnið fyrir próf til að festa enn betur í minni það sem hann er nú þegar búinn að læra.


Posted

in

by

Tags: