Matsferill, framvindupróf í stærðfræði, verður lagt fyrir alla grunnskólanemendur í 4., 6. og 9. bekk á tímabilinu 2. – 27. mars n.k. Einhver sveitarfélög hafa einnig tekið ákvörðun um að leggja Matsferilinn fyrir alla nemendur, í 4. – 10. bekk.
Eiga nemendur að undirbúa sig fyrir þetta samræmda próf í Matsferli?
Svarið er nei, nemendur eiga ekki að undirbúa sig sérstaklega fyrir þetta próf.
En mega nemendur undirbúa sig fyrir þetta próf?
Já, auðvitað!
Ef nemendur vilja standa sig vel á þessu prófi og eru tilbúnir að leggja á sig auka vinnu, þá ættu þeir auðvitað að fá tækifæri á að undirbúa sig. Núna er loksins komið aftur mælitæki sem er hlutlægt og samræmt, sem getur verið mikil hvatning fyrir nemendur að leggja aukalega á sig til að undirbúa sig sem allra best undir þessi próf.

Í tæpan áratug var ég með námskeið á netinu til að undirbúa nemendur undir samræmt próf í stærðfræði. Það var mjög mikil stemming og áhugi hjá nemendum sem tóku ákvörðun um að fara á námskeið hjá mér. Það getur nefnilega verið mjög hvetjandi og skemmtilegt að vinna markvisst og vel að því að undirbúa sig fyrir eitthvað sem skiptir nemendur einhverju máli.
Það er þess vegna sem ég ætla að bjóða upp á undirbúningsnámskeið fyrir Matsferilinn.
Námskeiðið er hugsað fyrir nemendur í 9. bekk, en myndi einnig henta nemendum í 8. og 10. bekk sem tilheyra þeim sveitarfélögum sem ætla að láta alla árganga taka þessi próf.
Markmið námskeiðsins, er meðal annars að:
– undirbúa nemendur undir Matsferil, framvindupróf
– auka stærðfræðilæsi nemenda, þar sem prófið verður nánast eingöngu orðadæmi
– æfa nemendur í að nálgast og leysa orðadæmi
– sýna nemendum að það eru margar leiðir að sama svari og hvetja til sjálfstæðrar hugsunar
– styrkja sjálfstraust nemenda
– auka áhuga nemenda á stærðfræði
– auka úthald nemenda í stærðfræði og þjálfa þrautseigju
Þegar þetta er skrifað, er námskeiðið þegar hafið.
En það getur verið að ég bjóði upp á annað Matsferils námskeið ef nægur áhugi er fyrir hendi. Ef þú hefur áhuga á að fá upplýsingar um næsta undirbúningsnámskeið fyrir Matsferilinn (ef af því verður) skráðu netfangið þitt þá hér: https://staerdfraedi.is/lata-vita-matsferill/
