| Dagur skrítna takkans á vasareikninum Flestir vita að skrítni takkinn (eins og margir nemendur mínir hafa kallað hann) á vasareikninum er kallaður pí og er næstum því 3,14. Þess vegna er 14. mars (03.14) hinn alþjóðlegi pí dagur. Hingað til höfum við Íslendingar haldið upp á dag stærðfræðinnar í febrúar. En í ár var ákveðið að framvegis mun dagur stærðfræðinnar á Íslandi vera á alþjóðlega pí deginum. En hvað er málið með þetta pí? Í mjög stuttu máli er pí tala sem er ummál hrings deilt með þvermálinu. Ummál hrings er því alltaf um það bil 3,14 stærri en þvermál hringsins. Ef þvermál hrings er 1 cm, þá er ummál hringsins um 3,14 cm og ef þvermál hrings er 5 cm, þá er ummál hringsins 5 x 3,14 cm o.s.frv. Pí var fyrst notað af Akrímedes um 200 fyrir Krist en þá reiknaði hann út að talan pí væri einhver tala milli 3 1/7 og 3 10/71. En þá var ekki notað orðið pí heldur töluðu menn bara um “stærðina sem gefur af sér ummál þegar hún er margfölduð með þvermáli”. Síðan þá hafa stærðfræðingar lagt mikið kapp á að reikna út aukastafi pí og dag er (síðast þegar ég vissi) búið að finna 31 billjón aukastafi pí. Pí fékk ekki nafnið pí fyrr en um 1700 þegar stærðfræðingurinn William Jones gaf því það nafnið pí, en hann dró það líklega af gríska orðinu perimitros þar sem fyrsti stafurinn á þessu orði á grísku lítur út eins og pí táknið. |
| Á ensku er pí borið fram sem “pie” eða baka og því upplagt að halda upp á þennan merka dag dag stærðfræðinnar á Íslandi með því að fá sér gómsæta böku Ertu með einhverjar spurningar? Hikaðu ekki við að senda mér póst og spyrja 🙂 Gyða stærðfræðikennari |
