Það er tvennt sem er kennt í skólum, sem að mínu mati, er alls ekki nóg að læra eingöngu í skólanum. Það er lestur og stærðfræði. Þetta er eitthvað sem þarf að þjálfa heima og mæla markvisst og reglulega í skólum.

Það verður enginn góður í að lesa, með því að lesa eingöngu í skólanum. Það þarf að vera skýr krafa á foreldra að hvetja og styðja við lestur barna sinna.
Þetta á líka við um stærðfræði. Það er ekki nóg að vinna stærðfræði eingöngu í skólanum. Stærðfræði er þannig fag að það er gríðarlega mikilvægt að nemendur nái að þjálfa upp færni þannig að það sem þeir læra fari inn í sjálfvirka kerfið í heilanum. Það gerist ekki bara með því að læra í skólanum.
Ég heyri oft þá röksemdarfærslu að það megi ekki biðja nemendur að læra heima í stærðfræði, því þá sé verið að mismuna þeim nemendum sem fá ekki aðstoð heima. En þegar ég tala um að láta nemendur læra heima, þá er ég að tala um að láta nemendur reikna aftur dæmi sem þeir voru að reikna í skólanum. Sem sagt, ekkert nýtt, heldur þjálfa færnina sem þeir lærðu í skólanum.
Margir nemendur tala um að þeir gleymi öllu sem þeir lærðu. Það er einmitt vegna þess að þeir hafa ekki náð að þjálfa upp færnina. Þessi sömu nemendur eru samt oftast með mikið sjálfstraust þegar kemur að stærðfræði, þeir reikna kannski 2-3 dæmi, fá rétt svar og halda að þeir séu bara með þetta. En það er svo langt frá því að vera raunveruleikinn. Það er mjög mismunandi eftir nemendum, en flestir nemendur þurfa að reikna tug dæma til að þjálfa upp færni sem skilar sér í því að þessi þekking er komin í sjálfvirka kerfi heilans.
Ég hvet þig sem foreldri að styðja við unglinginn þinn í lestri og stærðfræði. Þegar kemur að stærðfræði, þá getur þú sem foreldri beðið hann að reikna aftur nokkur dæmi sem hann reiknaði í skólanum. T.d. væri hægt að byggja upp vana, að alltaf 20 mínútur fyrir mat eða eftir mat, þá tekur unglingurinn upp stærðfræðibókina og reiknar aftur dæmi sem hann reiknaði í skólanum. Ef hann reiknaði ekki mörg dæmi heldur var að vinna eitthvað verkefni, þá er hægt að nýta þann tíma til að fara betur yfir það.
Gyða stærðfræðikennari
hjá stærðfræði.is
