Þessa dagana og næstu vikur eru flestir nemendur í grunnskólum að taka próf. Einnig eru margir 10. bekkingar að taka lokapróf og jafnvel bætingapróf. Samkvæmt reynslu, þá flokka ég nemendur í fjóra flokka, þegar kemur að þeirra nálgun í því að undirbúa sig fyrir stærðfræðipróf.
Í fyrsta flokknum eru nemendur sem halda að það sé ekki hægt að læra fyrir stærðfræðipróf, annaðhvort kanntu efnið eða ekki. Þessi flokkur er sem betur fer ekki algengur, en þó alltaf einhverjir sem eru með þetta viðhorf.
Í öðrum flokknum eru nemendurnir sem ætla að undirbúa sig mjög vel fyrir prófið, en vita ekki nákvæmlega hvað er til prófs og því verður sá undirbúningur mjög ómarkviss.
Í þriðja flokkinn fara nemendur sem vita nákvæmlega hvað er til prófs, en hafa ekki gott skipulag og ná einungis að fara yfir mjög lítinn hluta efnisins fyrir próf.
Í fjórða og síðasta flokknum eru nemendur sem vita nákvæmlega hvað er til prófs og eru með plan sem er þannig, að þeir munu ná að undirbúa sig fyrir allt efnið sem er til prófs.
Þar sem unglingurinn þinn er væntanlega að fara í stærðfræðipróf á næstunni, þá langar mig að koma með skilvirka leið hvernig best sé fyrir hann að undirbúa sig fyrir stærðfræðipróf úr efni sem hann hefur ekki áður tekið próf úr (það er nefnilega ólíkar áherslur ef hann er að fara í bætingapróf eða taka próf úr efni sem hann hefur áður tekið próf úr).
Hérna kemur listi yfir atrið sem unglingurinn þinn ætti að gera:
- Spurðu kennarann tímanlega (lágmarki viku fyrir prófið) hvaða efni er nákvæmlega til prófs. Fáðu einnig upplýsingar um hvaða dæmi væri best að reikna til að undirbúa sig sem allra best fyrir þetta próf. (Yfirleitt eru það öll dæmin sem búið er að fara yfir í efninu sem er til prófs).
- Skrifaðu niður númerin á öllum dæmum sem gott er að fara yfir fyrir prófið og flokkaðu dæmin. Búðu t.d. til kassa og í hvern kassa skrifar þú niður númer á öllum dæmum sem eru svipuð. Í stærðfræðibókum eru þessi dæmi yfirleitt flokkuð saman og best að nota þá flokkun. Þessi dæmi ættu þá að fara í sama kassa.
- Veldu síðan 1-2 dæmi úr hverjum kassa og strikaðu undir þau dæmi. Settu þér síðan markmið að ná að reikna þessi dæmi (þ.e.a.s. 1-2 dæmi úr hverjum kassa). Ef þú hefur lent í einhverjum vandræðum með dæmi, þá máttu endilega gera hring utan um þau og reikna þau líka.
- Ef þú nærð að reikna 1-2 dæmi í hverjum kassa og hefur enn tíma til að undirbúa þig fyrir prófið, þá velur þú aftur 1-2 dæmi í hverjum kassa.
- Á meðan þú ert að reikna þessi dæmi þá skaltu hafa hjá þér eitt autt blað. Á þetta blað skrifar þú allt sem þér finnst þú þurfa að muna þegar þú ert að fara í gegnum þessi dæmi. Ég kalla þetta blað “svindlmiðann” og hef skrifað um hann áður. Oft upplifum við nefnilega að við þurfum að muna svo mikið, en um leið og við komum þessum atriðum á eitt blað þá kemur yfirleitt í ljós að þessi atriði eru ekki svo mörg. Kvöldið fyrir próf og áður en þú ferð í prófið þá getur þú farið vel yfir svindlmiðann og gott ráð er að fara í prófið og byrja strax að skrifa á prófið mikilvæg atriði sem þú mannst af svindlmiðanum, því þá eru minni líkur á að þú gleymir þeim þegar þú upplifir stress í prófinu.
Hérna er yfirlitsblað sem þú getur prentað út fyrir þinn ungling til að muna betur það sem kom fram hérna að ofan. Þetta efni er tekið úr námskeiði sem ég hef verið að þróa, sem gengur út á að læra að læra með HeiViT aðferðinni.