fbpx

pí dagurinn

Í dag, mánudag, er pí dagurinn og einnig dagur stærðfræðinnar á Íslandi.

Pí er óræð tala sem byrjar á 3,14 og þess vegna er þessi dagur haldinn 14. mars ár hvert. Pí er “nákvæmlega” talan sem þú færð þegar þú ert með hring og tekur ummál hringsins og deilir í það með þvermáli hringsins.

Pí dagurinn

Þrátt fyrir að byrjað hafi verið að nota pí 200 árum fyrir Krist, þá er stutt síðan byrjað var að halda upp á þennan dag. Því má þakka eðlisfræðingnum Larry Shaw. En árið 1988 langaði honum að bæta starfsandann þar sem hann var að vinna og bjóða upp á ávaxtabökur (e. pie, hljómar eins og pí borið fram á ensku) og te þennan dag, 14. mars klukkan 1:59 eftir hádegi (þar sem næstu stafir á eftir 3.14 eru 159). Nokkrum árum seinna áttaði Shaw sig á því að 14. mars væri einnig fæðingardagur Albert Einsteins og tók hann þá að halda árlega upp á þennan merkilega dag.

Fleiri og fleiri áhugamenn um stærðfræði tóku upp á að halda upp á þennan merkilega dag og árið 2009 var þessi dagur orðinn mjög vinsæll um allan heim.

27. september árið 2000 var fyrsti dagur stærðfræðinnar á Íslandi. Síðan færðist sá dagur í að vera fyrsti föstudagur í febrúar ár hvert. En í fyrra, árið 2020, var ákveðið að þá og hér eftir yrði dagur stærðfræðinnar á Íslandi alltaf á pí deginum 14. mars.

Ég hvet alla til að gera eitthvað spennandi í tilefni dagsins – eins og að leysa flókið stærðfræði verkefni eða gátu. Á morgun, mánudag, mun pósta krefjandi og skemmtilegum verkefnum á Facebook síðuna mína í tilefni dagsins.

Bestu kveðjur,
Gyða stærðfræðikennari
hjá stærðfræði.is


Posted

in

by

Tags: