fbpx

Niðurstaða könnunar

Síðasta sunnudag sendi ég könnun á alla sem skráðir eru á póstlistann minn. Það er ekki auðvelt að fá fólk til að gefa tímann sinn í að svara könnun en ég er þó ánægð með þann fjölda svara sem ég er búin að fá þegar þetta er skrifað (19. apríl 2025).

54 svöruðu könnuninni

Af þeim 54 sem svöruðu könnuninni, þá svörðuð 52 því játandi að þeir vildu að það væri í boði að taka stöðupróf í grunnskólastærðfræðinni. Tveir voru ekki viss (svöruðu veit ekki) og ENGINN svaraði neitandi.

Af þeim sem svöruðu könnuninni, þá eru tæplega 78% þeirra með barn eða ungling í grunnskóla, en á póstlistanum mínum er einnig mikið af núverandi og fyrrverandi kennurum ásamt áhugasömum ömmum og öfum. Þetta er því ekki einungis viðhorf foreldra heldur líka þeirra sem er umhugað um menntun barna og unglinga almennt.

Þriðja og síðasta spurningin var hvort að viðkomkandi héldi að sinn unglingur væri til í að leggja á sig auka vinnu til að undirbúa sig fyrir stöðupróf í grunnskólastærðfræði. Aðeins einn svaraði nei, en 63% sögðu já og um 30% ekki viss/kannski. Svo voru nokkrir sem völdu að svara ekki, þar sem þeir eiga ekki barn eða ungling í grunnskóla.

Hjartans þakkir til allra þeirra sem gáfu sér tíma til að svara könnuninni.
Gyða stærðfræðikennari


Posted

in

by

Tags: