Ég hef verið að velta því mikið fyrir mér upp á síðkastið, hvenær ákváðum við að börn og unglingar ættu aldrei að finna fyrir álagi í grunnskólaskólakerfinu?
Fyrir tæpum 20 árum þurftu unglingar að leggja mikið á sig til að læra fyrir próf. Þeir þurftu jafnvel að sleppa leik og samveru um helgar til að ná að komast yfir ákveðið efni.

Í dag er sagan önnur. Í grunnskólum er yfirleitt enginn heimalærdómur og engin samræmd próf. Nemendur upplifa sjaldan að þeir þurfi að leggja sig fram.
Hvaða áhrif hefur þessi breyting til lengri tíma?
Eftir að niðurstöður úr síðustu PISA-könnun (2022) voru birtar, greindi Dr. Jón Steinsson, hagfræðiprófessor, stöðuna svona:
„Niðurstöður PISA-könnunarinnar eru sláandi. Getur verið að sú stefna að hafa engar einkunnir, engin próf, enga heimavinnu, ekkert álag, og gera engar kröfur, leiði einfaldlega til þess að enginn læri neitt?“ (Er rétt aðferð að gera engar kröfur?, 2023).
Er þetta kannski þar sem við erum stödd? Að gera engar kröfur og vona samt að nemendur læri eitthvað?
PISA 2022 sýndi að íslenskir nemendur lækka í öllum flokkum, enn og aftur. Þetta ætti að vera vekjaraklukka, ekki bara tölfræði.
Þrátt fyrir fyrirheit um aðgerðir og áætlanir hefur fátt breyst. Aðgerðaáætlun í menntamálum 2024–2027 átti að koma út síðastliðið sumar, en við höfum enn ekki séð hana. Fyrir nokkrum vikum voru PISA-prófin lögð aftur fyrir án þess að nokkur kerfisbreyting hefði orðið.(„Aðgerðir til að bregðast við PISA“, 2025)
Hvernig kennum við nemendum að þjálfa viljastyrk, þrautseigju og ábyrgð ef við höfum tekið út öll tækifæri til að æfa þessi gildi með því að leggja ekki neinar kröfur á nemendur?
Sem kennari í framhaldsskóla sé ég þessi áhrif á eigin skinni. Margir nemendur kunna ekki að skipuleggja sig til að læra heima eða undirbúa sig fyrir próf – einfaldlega af því að þeir hafa aldrei þurft þess áður.
Ég er ekki að segja að við þurfum núna að skella á mikilli heimavinnu og fullt af prófum. Við þurfum að finna jafnvægi – þar sem nemendur upplifa að það borgi sig að leggja sig fram. Það er eðlilegt, og nauðsynlegt að leggja kröfur á nemendur og leyfa þeim upplifa að þeir þurfi að fórna einhverju til að ná árangri í námi og lífi.
Bestu kveðjur,
Gyða stærðfræðikennari
Heimildir
Aðgerðir til að bregðast við PISA kynntar eftir PISA. (2025, 13. apríl). Morgunblaðið. https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/04/13/adgerdir_til_ad_bregdast_vid_pisa_kynntar_eftir_pis/
Er rétt aðferð að gera engar kröfur? (2023, 12. desember). Viljinn. https://viljinn.is/frettir/er-rett-adferd-ad-gera-engar-krofur/