Veistu hvað unglingurinn þinn er að gera í stærðfræðitíma?
Er hann að spjalla við sessunaut, á klósettinu, að horfa út í loftið eða er hann einbeittur að vinna eða hjálpa öðrum?
Þú þarft ekki að vera fluga á vegg til að finna það út. Þú getur haft samband við stærðfræðikennarann hans og spurt hann.

En það er líka önnur leið sem þú getur farið, sem gefur ágætis vísbendingu um hvað unglingurinn þinn er að gera í stærðfræðitímum. Það er að skoða reikningsbókina hans í stærðfræði. Þú getur byrjað á því að merkja í bókina hans strik eða dagsetningu og út frá því séð hvað hann gerir í einum stærðfræðitíma. Ef hann er bara að reikna 1-2 dæmi eða jafnvel ekkert dæmi, þá myndi ég hafa áhyggjur.
En reikningsbókin í stærðfræði getur gefið okkur meiri upplýsingar. Fyrir rúmum tveimur árum skrifaði ég grein sem bar heitið Hvernig lítur reikningsbókin út? sem gæti gagnast þér að lesa.
En hvers vegna eru nemendur að spjalla, horfa út í loftið eða á klósettinu í stað þess að vera einbeittir og vinnusamir í stærðfræði. Mín reynsla er sú að oft er ástæðan að efnið sé aðeins of erfitt, einnig eiga margir nemendur erfitt með að einbeita sér í svona opnum rýmum eins og kennslustofur eru. Sjálf var ég þannig að ég gat aldrei unnið eða einbeitt mér í tíma og því þurfti ég að læra mjög mikið heima í staðin.
Gyða stærðfræðikennari
hjá staerdfraedi.is
