Nýjustu greinarnar

  • Framhaldsskólinn – það sem enginn veit

    en allir ættu að vita um einkunnir inn í framhaldsskóla Það eru ekki margir foreldrar og nemendur sem vita hvernig einkunnir í grunnskóla eru metnar inn í framhaldsskóla. Í stuttu máli er það þannig að ef nemendur ná ekki B (eða hærra) í lokaeinkunn í stærðfræði í 10. bekk, þá geta þeir ekki byrjað í…

  • Er hægt að mæla vaxandi hugarfar?

    Henry Ford sagði einhvern tíma: Whether you think you can​or you think you can’t​you’re right​ Til að ná árangri í stærðfræði og lífinu almennt þá er mikilvægt að við trúum því að við getum gert það sem okkur langar til að gera.  Ef við trúum því að við getum ekki lært stærðfræði þá erum við með hamlandi hugarfar (e. fixed mindset)…

  • Rangt er gott

    Ef ég spyr nemendur: “Myndir þú vilja mæta í stærðfræðitíma og læra eitthvað nýtt – eða læra ekkert nýtt?” þá svara flestir nemendur að þeir vilji læra eitthvað nýtt. En það er samt þannig að nemendum finnst svo rosalega gaman að reikna dæmi og fá alltaf rétt svar. Svo verða flestir svekkir þegar þeir fá rangt svar. …

  • Glerboxin úr Costco og rýmisgreind

    Ég keypti ferhyrnd glerbox með plastlokum í Costco fyrir um ári síðan. Þá gerði ég mér grein fyrir að ég er með svakalega lélega rýmisgreind…  Ég er með glerboxin í sér skúffu í eldhúsinu og plastlokin í annarri skúffu. Fyrst vel ég glerbox og svo fer ég og finn viðeigandi plastlok. Það er næstum skammarlegt fyrir…

  • Svindlmiðinn er besti miðinn

    Flestir grunnskólar eru með lokapróf í komandi viku og mér fannst því viðeigandi að minnast á eitt próftækniatriði sem er gott að tileinka sér við prófundirbúning.  Ég er nokkuð viss um að unglingnum þínum finnist hann þurfa að muna svo mikið af ólíkum aðferðum fyrir stærðfræðipróf, en staðreyndin er sú að yfirleitt er hægt að…

  • Píanó er ekki gott dæmi

    “Allir geta lært stærðfræði og allir geta orðið mjög góðir í stærðfræði, en nemendum þarf að langa til þess og þeir þurfa að vera tilbúnir að leggja mikið á sig. Mig langar t.d. alveg til að verða mjög góð á píanó, en ég er bara ekki tilbúin að leggja á mig það sem þarf til að verða góð á…

  • Ertu alveg viss?

    Ég var að klára að lesa skemmtilega bók sem heitir Think again eftir Adam Grant.  Í bókinni talar höfundur um Davíð Oddsson og Höllu Tómasardóttur – sem kom skemmtilega á óvart en það sem mér fannst áhugavert er þegar höfundurinn talaði um að við ættum að gera meira af því að endurhugsa og aflæra (e.…

  • Kvíðavaldandi margföldunartaflan

    Páfagaukalærdómur er ekki stærðfræði og í þessum pistli ætla ég að tala um kvíðavaldandi margföldunartöfluna, enmargföldunartaflan á stóran þátt í því að nemendur líta neikvætt á stærðfræði því oftast eiga nemendur að læra hana utanað – en stærðfræði snýst ekki um að læra utanað.  Nemendur þurfa að fá að læra margföldunartöfluna í skapandi umhverfi þar sem þeir læra að skilja…

  • Mest misskilda fagið

    Stærðfræði er oft misskilin og ég held að óvinsældir hennar megi að einhverju leiti rekja til þess.​Flestir nemendur halda að maður þurfi að vera fljótur að fatta nýtt efni, eigi að vera snöggur að reikna, nota ákveðna aðferð til að leysa dæmin og helst fá alltaf rétt svör. Margir halda líka að sumir séu bara fæddir…

  • Upp með puttana!

    Tíminn líður en lítið breytist Stærðfræðikennsla hefur lítið breyst í skólum frá því ég var í skóla (og líka frá því foreldrar mínir voru í skóla). Í flestum grunnskólum er enn áhersla á að læra margföldunartöfluna utanað (sem eykur á stærðfræðikvíða og hefur lítið með stærðfræði að gera en fínt fyrir þá sem eru góðir í að…

  • Geta lesblindir lært að lesa?

    Auðvitað geta lesblindir lært að lesa – við vitum það öll. En geta nemendur með stærðfræðiblindu lært stærðfræði og orðið mjög góðir í stærðfræði? Svarið er já! Ég kenni stærðfræði á framhaldsskólastigi í “raunveruleikanum”. Fyrir um fjórum árum kom til mín nemandi sem hafði dreymt um að verða dýralæknir. En stærðfræðikennarinn hennar í grunnskóla hafði sagt við…

  • Hvað varð um Nicholas?

    Allir geta lært stærðfræðiog allir geta orðið góðir í stærðfræði Þetta er slagorðið mitt og ég veit að þetta er satt. En það er samt þannig að það eru ekki allir sem trúa því. Margir halda enn í dag að gáfur hafi eitthvað með velgengni að gera og margir halda að sumir séu bara fæddir góðir í stærðfræði…