Nýjustu greinarnar
-
Fingrasetning krefst æfingar
Síðast skrifaði ég um skoðun mína á iPad í kennslu. Í kjölfarið fékk ég mestu viðbrögð sem ég hef nokkurn tíma fengið yfir því sem ég hef skrifað. Flestir tölvupóstar voru frá foreldrum úr Kópavogi, en iPad í því sveitafélagi er alls ráðandi. Í stuttu máli sagt eru foreldrar ráðalausir, það er gríðarleg togstreita milli…
-
iPad í kennslu – já eða nei?
Það er mismunandi eftir skólum hvar þeir standa í tæknimálum. Í sumum skólum og sveitarfélögum eru allir nemendur á unglingastigi (og jafnvel miðstigi) með iPad, aðrir með Chromebook fartölvur og svo eru skólar sem eru illa tækjum búnir og eru enn með takmarkað magn af tölvum eða tækjum sem þeir samnýta með öllum skólanum. Ég…
-
Aðstoð við prófundirbúning
Þessi póstur fjallar um hvernig þú getur hjálpað unglingnum þínum að undirbúa sig fyrir próf án þess að hjálpa honum að undirbúa sig fyrir próf. Sem sagt, þú þarft ekki að sitja hjá honum meðan hann er að læra eða aðstoða hann við að skilja efnið – en getur samt hjálpað honum heilmikið að undirbúa sig fyrir prófin! Núna…
-
Hvað á að gera við fermingarpeningana?
Getur 1 króna orðið að 1 milljón á 20 dögum?Já, t.d. ef ég tvöfalda alltaf þá upphæð sem ég á, þá verður 1 króna orðin að rúmlega milljón eftir 20 daga (nánar tiltekið 1.048.576). Það hljómar ótrúlegt, en það er samt þannig. Eftir 1 dag, ertu kominn með 2 krónur; eftir 2 daga ertu kominn…
-
Ráð til að forðast þekkingarblekkingu
Ég hef áður talað um þekkingarblekkingu, en í þessum pósti ætla ég að nefna þrjú ólík dæmi um þekkingarblekkingu, svo þú getir varað unglinginn þinn við þeim. Ef við lesum kafla í bók sem við höfum lesið áður, þá finnst okkur oft eins og við skiljum allt og kunnum allt – af því að það hljómar…
-
Spurning sem foreldrar ættu að spyrja
Langþráð páskafrí er að hefjast og ég veit að sumir nemendur kjósa að taka sér alveg frí frá öllu námi á meðan aðrir nota páskafríið sem tækifæri til að vinna upp í þeim fögum sem þeir eru eftirá. Þegar páskafríið er búið þá eru rúmir tveir mánuðir eftir af grunnskólanum, en í raun bara einn…
-
Stærðfræðinámskeið fyrir fullorðna
Mér var boðið í veislu á fimmtudagskvöld og þar hitti ég fyrrum samstarfskonu mína sem spurði mig hvort ég væri með einhver stærðfræðinámskeið á netinu fyrir fullorðna. Þegar hún var í framhaldsskóla þá frestaði hún öllum stærðfræðiáföngum og á endanum var hún komin með allt sem þurfti fyrir stúdentspróf – nema stærðfræðiáfangana. Hún endaði með…
-
Hvert ertu kominn?
Hvert ertu kominn eða hvert ætlaru? Ég hef áður vitnað bókina The Gap and the Gain eftir Dan Sullivan og Dr. Benjamin Hardy, þar sem hún fékk mig til að hugsa heilmikið um hvað það skiptir máli hvernig við hugsum og tölum um það sem skiptir okkur máli. Flestir sem eru metnaðarfullir og vilja ná langt í…
-
Hver var Pýþagóras?
Pýþagóras var stærðfræðisnillingur, eða svo er alla vega sagt. Hann er sagður hafa verið fyrstur til að sanna reglu sem er kennd við hann og hægt að nota til að finna eina óþekkta hlið í rétthyrndum þríhyrningi ef tvær hliðar eru gefnar. Nemendur í 10. bekk fá flestir að kynnast þessari mögnuðu reglu og jafnvel…
-
pí dagurinn
Í dag, mánudag, er pí dagurinn og einnig dagur stærðfræðinnar á Íslandi. Pí er óræð tala sem byrjar á 3,14 og þess vegna er þessi dagur haldinn 14. mars ár hvert. Pí er „nákvæmlega“ talan sem þú færð þegar þú ert með hring og tekur ummál hringsins og deilir í það með þvermáli hringsins. Þrátt…
-
Samræmdu prófin
Gleðilegan sunnudag! Í dag langar mig að skrifa smá minningargrein um samræmdu prófin. En eins og hefur komið fram í fjölmiðlum var hætt við þessi próf þegar einungis tvær vikur voru í samræmdu prófin í 9. bekk. Skv. grunnskólalögum ber ráðaneytinu að leggja fyrir þessi próf, en ég geri ráð fyrir að það sé verið að fara…
-
Fjöldi heilafruma
Það er svo margt sem við vitum í dag um heilann, sem var ekki vitað þegar ég var unglingur. Í nokkra áratugi var það trú manna að við fæðumst með ákveðinn fjölda heilafruma og við þurfum að passa upp á þær því þær verða ekki fleiri. Ég man líka eftir því þegar ég var unglingur…
