Nýjustu greinarnar
-
Hvern langar ekki að læra stærðfræði
Ég hef haldið fyrirlestra í skólum um stærðfræði og ég byrja alltaf fyrirlestrana á því að segja:Rannsóknir staðfesta og sanna að allir geta lært stærðfræði og allir geta orðið góðir í stærðfræði….en hvers vegna eru þá ekki allir góðir í stærðfræði? Unglingar vita alveg svarið við því, það er:Af því að þeim langar ekki að…
-
Pásu áhrifin
Ég ætla að segja þér frá aðferð sem unglingurinn þinn gæti nýtt sér þegar hann er að læra – sérstaklega ef hann þarf að festa fljótt í minni það sem hann er að læra. Almennt þegar við erum að læra nýtt efni, þá erum við að nota framheilann (vinnsluminnið) til að vinna mestu vinnuna. En…
-
Dagur stærðfræðinnar
Dagur stærðfræðinnar á Íslandi er á þriðjudaginn. Þrátt fyrir að sá dagur sé ekki jafn stór og viðamikill og dagur íslenskrar tungu, þá verður hann það vonandi í nánustu framtíð. Við Íslendingar héldum fyrst upp á þennan dag stærðfræðinnar þann 27. september árið 2000, en þá var einmitt Alþjóðlegt ár stærðfræðinnar. Eftir það héldum við upp á…
-
Er of seint að læra stærðfræði?
Er einhvern tíma of seint fyrir unglinginn þinn að læra stærðfræði?Það fer eftir ýmsu… Ef unglingurinn þinn er einungis að hugsa um að redda næsta prófi eða redda önninni þá er vissulega hægt að segja að stundum sé of seint að læra stærðfræði. En ef staðan er ekki þannig að verið sé að redda einhverju á síðustu stundu þá…
-
Þarft ekki að kunna til að hjálpa
Hefur þú lent í því að þinn unglingurinn þinn er alveg stopp í stærðfræðinni þegar hann er að læra heima? Kannski hefur þú einhvern tíma hugsað hvað það væri nú gott að kunna þetta efni (enn) til að geta hjálpað. En stærðfræði er þannig fag, að það er ekki nein hjálp í því að fá…
-
Hvernig er reikningsbókin?
Hefur þú skoðað reikningsbókina hjá þínum unglingi? Í grunnskóla eru yfirleitt strangar kröfur hvernig reikningsbók nemenda á að vera, sérstaklega á miðsstigi. Þrátt fyrir það hafa nemendur tamið sér ýmsar leiðir til að nýta reikningsbókina í stærðfræði. Ég hef verið að kenna í tæpan áratug stærðfræði á framhaldsskólastigi og verð alltaf jafn spennt að sjá…
-
Reikna meira er ekki lausn
Ef unglingurinn þinn á í miklum erfiðleikum með stærðfræði, þá er lausnin sjaldnast að láta hann byrja að læra meira heima. Það getur meira að segja gert illt verra. Gefum okkur að unglingurinn þinn standi höllum fæti í stærðfræði, en sé tilbúinn að taka sig á. Hann er með rétta viðhorfið og veit út á…
-
Stærðfræði og könguló
Finnst flestum nemendum gaman að reikna létt stærðfræðidæmi?Svarið við þessu er já! – enda er heilinn hannaður til að forða okkur frá óþægindum og rannsóknir hafa sýnt að sama svæði í heilanum lýsist upp þegar nemandi sér flókið stærðfræðidæmi og könguló – enda bæði stórhættuleg! En hvaðan kemur þessi hræðsla?Hræðslan kemur af misskilning um hvað…
-
Að reyna á heilann
Ef okkur langar til að bæta líkamlegt þol, þá gerum við það ekki með því að rölta í rólegheitum í klukkutíma á dag. Auðvita er klukkutíma rölt á dag frábært og betra en að sitja kyrr fyrir framan tölvuskjáinn, en ef markmiðið er að auka líkamlegt úthald, þá verðum við að reyna á okkur.Það er…
-
Mikilvægasta fyrst
Ef þú átt ungling sem er vanur að segjast ætla að gera eitthvað skemmtilegt fyrst og fara svo að læra t.d. „ég ætla að klára að horfa á einn þátt og fara svo að læra“ eða „spila einn leik og læra svo“ – þá er þessi póstur sérstaklega fyrir þig. Ég líki þessu stundum við…
-
Gættu orða þinna
Við vitum flest að við þurfum að passa hvað við segjum. Ef ég segi t.d. „ég get þetta“, þá eru miklar líkur á að ég geti það. En ef ég segi „ég get þetta ekki“, þá eru miklar líkur á að ég geti það ekki. Ég var að vinna með einum sérkennara sem var alltaf…
-
Hvað má ekki segja um stærðfræði
Segjum sem svo að þú hafir aldrei verið góð í stærðfræði og unglingurinn þinn er heima að læra, er leiður og talar um að hann geti ekki lært stærðfræði, hún sé svo erfið og hann skilji ekki neitt. Ég veit að allir foreldrar vilja það besta fyrir barnið sitt eða ungling, svo það er kannski…
