Nýjustu greinarnar

  • Reikna meira er ekki lausn

    Ef unglingurinn þinn á í miklum erfiðleikum með stærðfræði, þá er lausnin sjaldnast að láta hann byrja að læra meira heima. Það getur meira að segja gert illt verra. Gefum okkur að unglingurinn þinn standi höllum fæti í stærðfræði, en sé tilbúinn að taka sig á. Hann er með rétta viðhorfið og veit út á…

  • Stærðfræði og könguló

    Finnst flestum nemendum gaman að reikna létt stærðfræðidæmi?​Svarið við þessu er já! – enda er heilinn hannaður til að forða okkur frá óþægindum og rannsóknir hafa sýnt að sama svæði í heilanum lýsist upp þegar nemandi sér flókið stærðfræðidæmi og könguló – enda bæði stórhættuleg! En hvaðan kemur þessi hræðsla?​Hræðslan kemur af misskilning um hvað…

  • Að reyna á heilann

    Ef okkur langar til að bæta líkamlegt þol, þá gerum við það ekki með því að rölta í rólegheitum í klukkutíma á dag. Auðvita er klukkutíma rölt á dag frábært og betra en að sitja kyrr fyrir framan tölvuskjáinn, en ef markmiðið er að auka líkamlegt úthald, þá verðum við að reyna á okkur.​Það er…

  • Mikilvægasta fyrst

    Ef þú átt ungling sem er vanur að segjast ætla að gera eitthvað skemmtilegt fyrst og fara svo að læra t.d. „ég ætla að klára að horfa á einn þátt og fara svo að læra“ eða „spila einn leik og læra svo“ – þá er þessi póstur sérstaklega fyrir þig. Ég líki þessu stundum við…

  • Gættu orða þinna

    Við vitum flest að við þurfum að passa hvað við segjum. Ef ég segi t.d. „ég get þetta“, þá eru miklar líkur á að ég geti það. En ef ég segi „ég get þetta ekki“, þá eru miklar líkur á að ég geti það ekki. Ég var að vinna með einum sérkennara sem var alltaf…

  • Hvað má ekki segja um stærðfræði

    Segjum sem svo að þú hafir aldrei verið góð í stærðfræði og unglingurinn þinn er heima að læra, er leiður og talar um að hann geti ekki lært stærðfræði, hún sé svo erfið og hann skilji ekki neitt. Ég veit að allir foreldrar vilja það besta fyrir barnið sitt eða ungling, svo það er kannski…

  • Gleðilegt nýtt ár!

    Gleðilegt nýtt ár! Núna er tími áramótaheita en þau eiga ekkert sérstaklega vel við nemendur í grunnskóla, þar sem þessi tími þýðir einungis að skólaárið sé hálfnað. Það er því mun hentugri tími að setja sér góð markmið í upphafi skólaárs (í lok ágúst). En það breytir samt því ekki að það er alltaf góður…

  • Gleðilega hátíð

    Síðustu dagar hafa verið góð áminning fyrir mig að fresta ekki öllu fram á síðustu stundu. Nú veit ég ekki hvort að unglingurinn þinn hafi verið í prófum í desember, taki próf í janúar eða taki kannski engin próf en það má líkja undirbúningi fyrir próf við undirbúning fyrir jólin. Flestir byrja að læra allt…

  • Sameiginlegt með PRIME og stærðfræði

    Eitt af því sem ég kenni nemendum á námskeiðunum hjá mér, er að allt sem þau sjá og heyra hefur áhrif á þau. Allt í einu er þeim farið að langa rosalega mikið í „þennan síma“ eða „þessa úplu“ eða PRIME drykkinn – en þau vita samt ekki af hverju… Þess vegna eru auglýsingar – af því að…

  • Hvenær á ég eftir að nota þetta í framtíðinni?

    Ég held ég geti fullyrt að enginn stærðfræðikennari hefur komist hjá því að fá spurninguna „hvenær á ég eftir að nota þetta í framtíðinni?“ þegar kemur að stærðfræði. Fyrst þegar ég byrjaði að kenna, þá var ég mikið að reyna að sanna fyrir nemendum að þeir ættu kannski eftir að nota þetta í framtíðinni. En…

  • Orðaforði í stærðfræði

    Ef við ætlum að ná góðum tökum á einhverju, þá verðum við að geta tjáð okkur í orðum um það efni. Íslenskan er þekkt fyrir að hafa hátt í hundrað orð yfir snjó. Ef ég ætla að verða mikill snjófræðingur, þá er nauðsynlegt fyrir mig að þekkja þessi ólíku orð til að geta tjáð mig betur um þetta fyrirbæri sem…

  • Þakkargjörðardagurinn og heilinn okkar

    Þrátt fyrir að Íslendingar haldi ekki upp á þakkargjörðardaginn og kannski óþarfi að apa upp allar erlendar hefðir, þá er ýmislegt jákvætt sem við getum lært af þeirri hátíð. Þegar ég bjó í Bandaríkjunum þá kynntist ég þessari skemmtilegu hefð sem er mun alvarlegri og hátíðlegri hjá þeim en jólin hjá Íslendingum. Bandaríkjamenn leggja mikla…