Eru farin(n) að venjast þessum hristingum?

Vont en það venst

Þeir sem búa á suðvesturhorninu hafa eflaust vaknað upp við einhverja skjálfta í nótt. Eftir miðnætti voru fimm skjálftar sem voru yfir 4 á Richter og einn sem var 5 !

Þegar þessi skjálftahrina var að byrja fyrir rúmum tveimur vikum þá voru margir hræddir en flestir eru farnir að venjast þessum hristingi og jafnvel hætt að veita þeim athygli. 

Mér finnst alveg ótrúlegt hvað hægt er að venjast einhverju sem eru af þessu tagi, en það er nú samt þannig. 

En þetta er líka áminning um að við getum vanið unglinginn okkar á ýmislegt sem honum finnst óþægilegt/vont/leiðinlegt til að byrja með en svo eftir smá tíma þá kemst þetta upp í vana. 

Það eru margar leiðir til að byggja upp vana en ein aðferð sem mér finnst alveg frábær kemur frá BJ Fogg 
sem skrifaði bókina Tiny Habits. 

Skv. hans aðferðafræði er ekki gott að ætla sér of mikið heldur byrja smátt og svo smátt að það er jafnvel fáránlegt. 

Margir hafa ekki komið upp vana með að nota tannþráð daglega. 

T.d. ef við myndum nýta okkur hans aðferðafræði þá ættum við ekki að byrja á að ákveða að nota tannþráð á allar tennurnar strax – það er allt of mikil breyting. 

Best er að byrja á að nota tannþráð á einum stað! Hver hefur ekki tíma til að nota tannþráð á einum stað?! Það er svo fáránlega lítið mál – að það væri asnalegt að segjast ekki nenna því. 

Ef það gengur vel í eina viku þá er hægt að auka það í að nota tannþráð á tveimur stöðum. Svo heldur þetta áfram með smávægilegum aukningum þar til við erum farin að nota tannþráð á allar tennurnar daglega. 

Það er alveg hægt að yfirfæra þetta yfir á heimalærdóm eða tiltekt. 

Lykilatriðið er byrja fáránlega smátt. T.d. venja sig á að læra í 10 mínútur strax eftir skóla eða kvöldmat og ef það gengur vel, þá er hægt að auka það í 15 mínútur…. 

Hver er helsta áskorunin þín þegar kemur að þínum unglingi og námi? Þú mátt endilega senda mér póst (með því að svara þessum pósti) og láta mig vita. 

Bestu kveðjur,
Gyða stærðfræðikennari


Posted

in

by

Tags: