Af hverju er svona oft leitað til formanns stéttarfélags kennara þegar ræða á hvað sé nemendum fyrir bestu?
Ég hélt að ég væri ein um að velta þessu fyrir mér, þar til ég heyrði skólastjórnanda spyrja nákvæmlega sömu spurningar í pallborðsumræðu á Menntakviku, ráðstefnu Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, í vikunni.

Hvort sem verið er að ræða símabann eða breytingar á einkunnagjöf í grunnskólum er formaður Kennarasambands Íslands (KÍ) oft fyrsti viðmælandinn. En hlutverk stéttarfélags er að gæta kjara og starfsaðstæðna félagsmanna sinna. Það er mikilvægt hlutverk. Oft fara hagsmunir kennara og nemenda saman, til dæmis þegar góðar starfsaðstæður verða til þess að færri kennarar hætta. En þeir fara ekki alltaf saman, og stundum stangast þeir beinlínis á.
„Treystum kennurum“
Kennarasambandið hefur til dæmis talað fyrir því að treysta kennurum betur. Í löndum þar sem nær allir kennarar eru vel menntaðir í sinni grein er það skynsamleg stefna. En á Íslandi er hlutfall leiðbeinenda hátt, og stór hluti þeirra sem hafa kennsluréttindi hefur ekki sérhæft sig í faginu sem þeir kenna. Við þær aðstæður er varhugavert að veita kennurum fullt sjálfræði án viðmiða og eftirfylgni.
Minni bekkir
Víða um heim berjast stéttarfélög fyrir minni bekkjum. Rannsóknir sýna hins vegar að það skiptir mun meira máli hver kennir en hve margir sitja í bekknum. Að fækka nemendum úr 30 í 25 breytir litlu ef kennslan sjálf batnar ekki. Kennarinn verður ekki betri við það eitt að nemendum fækkar. Fyrir stéttarfélag er þetta þó skiljanleg krafa, því minni bekkir létta álagi af félagsmönnum og fjölga störfum.
Mælingar
Mörg stéttarfélög kennara erlendis hafa lagst gegn mælingum, bæði á kennurum og nemendum, því mælingar á nemendum fela í sér óbeint mat á kennurum. En án mælinga vitum við ekki hvort börnin okkar eru að læra það sem þau eiga að læra.
Laun og starfsöryggi
Í löndum þar sem stéttarfélög kennara hafa mikil pólitísk áhrif hafa þau oft staðið gegn umbótum sem herða inntökuskilyrði í stéttina, tengja laun við frammistöðu eða gera skólum kleift að segja upp kennurum sem standa sig illa. Í slíkum tilvikum stangast hagsmunir stéttarfélagsins og nemenda beinlínis á.
Hverja ættum við þá að spyrja?
Ég er ekki að segja að rödd kennara eigi ekki að heyrast. Ég er sjálf kennari. En stéttarfélag er hagsmunaaðili, ekki hlutlaus sérfræðingur. Þegar ræða á mál sem varða nám barnanna okkar ættum við líka að heyra í rannsakendum, skólastjórnendum, foreldrum og nemendum sjálfum.
Hvað finnst þér? Ertu með einhverjar spurningar? Ef svo er, hikaðu ekki við að hafa samband með því að svara þessum pósti.
Bestu kveðjur,
Gyða stærðfræðikennari
