Sú saga gengur á samfélagsmiðlum og í fréttum að íslenskir nemendur nenni ekki að leggja sig fram í PISA-prófunum. Að kennarar segi þeim að prófið skipti engu máli, að þau svari án þess að reyna við spurningarnar og að lélegur árangur okkar sé því ekkert að marka. Þetta er áhugaverð fullyrðing sem hægt er að rannsaka nánar. PISA er tekið í tölvu, og tölvan skráir hversu margar sekúndur hver nemandi eyðir í hverja einustu spurningu.

Hvernig áhugaleysi er mælt í PISA
Aðferðin er einföld. Ef nemandi svarar spurningu á innan við fimm sekúndum getur hann ekki hafa lesið hana og hugsað um hana. Hann bara smellti á eitthvað. Á fræðimáli heitir þetta hraðágiskun (e. rapid guessing), og hún er viðurkenndur mælikvarði á það þegar próftaki hefur hætt að leggja sig fram.
Að þetta mæli uppgjöf, en ekki það að vera snöggur að hugsa, sést á niðurstöðunum sjálfum. Í greiningu þeirra Michalis Michaelides og Militsu Ivanovu við Háskólann á Kýpur, sem birtist árið 2022 og nær til 56 landa, fengu nemendur sem svöruðu á innan við fimm sekúndum aðeins 8% svara rétt. Þeir sem unnu verkefnið fengu 56% rétt. Átta prósent er það sem maður fær með því að giska út í loftið. Þessir nemendur voru ekki fljótir að hugsa, þeir hugsuðu ekki.
Hvað gögnin segja um Ísland
Í lesskilningshluta PISA 2015 voru 2,56% íslenskra svara gefin á innan við fimm sekúndum. Það er rúmlega tvöfalt á við dæmigert land, og aðeins þrjú lönd af 56 mældust hærri: Katar, Ísrael og Kýpur. Finnar mældust langlægstir Norðurlandanna, með um 0,74%.
Hlutfall íslenskra nemenda sem gefst upp á miðju prófi er sem sagt hærra en gengur og gerist, en það er eftir sem áður lágt hlutfall.
Hvað þetta þýðir ekki
Hér þarf að stíga varlega, því töluna er auðvelt að mistúlka.
Í fyrsta lagi þýðir 2,56% ekki að íslenskir unglingar séu almennt hættir að nenna. Það þýðir að á hverri spurningu að meðaltali smelltu tveir til þrír af hverjum hundrað á eitthvað svar, án þess að lesa spurninguna. Yfir 97% svaranna voru unnin af alvöru. Að nenna ekki að taka PISA alvarlega er því hegðun minnihluta, en minnihluta sem er mælanlega stærri hér en annars staðar.
Í öðru lagi mælir aðferðin aðeins hraða uppgjöf. Hún nær ekki utan um nemandann sem les spurninguna, velur svo líklegasta svarið og heldur áfram án þess að reyna verulega á sig. Sá nemandi er ekki að leggja sig allan fram, en hann er þó að reyna að giska rétt og telst því „að reyna að svara“ í þessum gögnum. Raunverulegt áhugaleysi er því sennilega útbreiddara en talan segir.
Í þriðja lagi er hraðágiskun ekki það sama og lítil geta. Kórea mældist nákvæmlega jafnhátt og Ísland, 2,56%, og er samt í fremstu röð í frammistöðu.
Og í fjórða lagi: munurinn milli landa er lítill í stóra samhenginu. Í öllum löndunum 56 er langstærstur hluti nemenda að vinna prófið af alvöru. Þau lönd þar sem nemendur leggja sig meira fram standa sig að jafnaði betur, en sambandið er veikt, áreynsla skýrir aðeins lítinn hluta af því sem skilur löndin að.
Loks byggir þessi greining á PISA 2015. Sambærileg samanburðargreining hefur ekki verið birt fyrir nýjustu kannanirnar.
Þessi gögn geta því ekki borið þá fullyrðingu að áhugaleysi skýri fall Íslands í PISA. En þau benda til þess að hlutfall þeirra sem gefast upp á miðju prófi sé hærra hér en hjá þeim þjóðum sem við berum okkur helst saman við.
Af hverju skiptir máli að segja nemendum að PISA skipti máli
Munurinn á 2,56% og 0,74% er ekki munur á greind. Hann snýst um hvað nemendur halda að prófið þýði fyrir þá sjálfa og það er ekki meðfætt. Það er lært og það er kennt.
Þetta er kjarninn í kenningunni um væntingar og gildi (e. expectancy value theory), og hún er í raun einfalt margföldunardæmi. Hversu mikið nemandinn leggur á sig ræðst af tvennu: hvort hann telur sig geta leyst verkefnið, sinnum hversu mikils virði honum þykir það. Kennari sem segir við nemendur „þetta próf skiptir engu máli“ setur seinni þáttinn í núll. Og margföldun með núlli gefur núll, sama hversu stór hinn þátturinn er.
Þetta er líka sá þáttur sem er auðveldast að laga. Jose Rios tók árið 2021 saman meira en fimmtíu rannsóknir á því hvað virkar til að fá nemendur til að leggja sig fram á prófum sem engu skipta fyrir þá sjálfa. Það sem skilaði mestu, fyrir utan beinar umbunir, var einfaldlega að auka mikilvægi prófsins í augum nemenda. Áhrifin voru raunveruleg en hófleg. Það kostar ekkert nema samræmda ákvörðun um hvað sé sagt við nemendur áður en þeir setjast niður.
Þetta mun ekki eitt og sér lyfta Íslandi upp töfluna. En þetta er raunverulegt, mælanlegt og alfarið á valdi skólanna sjálfra, sem er meira en sagt verður um flest annað sem PISA mælir.
Þegar samræmdu prófin voru í gangi heyrði ég af kennurum sem sögðu við nemendur að prófin skiptu engu máli. Það sama var uppi á teningnum í síðasta Matsferilsprófinu, og ég geri ráð fyrir að einhverjir tali PISA-prófin niður líka. Ég held að fæstir átti sig á því hvað þessi setning kostar. Hún tekur eina mínútu að segja og hún er það eina í öllu þessu sem við höfum fullkomna stjórn á.
Ertu með einhverjar spurningar? Ef svo er, hikaðu ekki við að spyrja mig með því að svara þessum pósti eða senda mér póst á hjalp@staerdfraedi.is
Bestu kveðjur,
Gyða, stærðfræðikennari
hjá stærðfræði.is
PS. Skólaárið er farið af stað og núna er frábær tími til að spyrja sig: hvernig stendur unglingurinn minn í stærðfræði? Ef þú átt ungling (í 7.–10. bekk) sem þarf að styrkja grunninn og fá tækifæri til að þjálfa upp skilvirkni og fimi, skráðu þá netfangið þitt á Láta-vita póstlistann minn fyrir næsta námskeið https://staerdfraedi.is/lata-
PPS. Heimildir
Cole, J. S., Bergin, D. A., & Whittaker, T. A. (2008). Predicting student achievement for low stakes tests with effort and task value. Contemporary Educational Psychology, 33(4), 609–624. https://doi.org/10.1016/j.cedpsych.2007.10.002
Michaelides, M. P., & Ivanova, M. (2022). Response time as an indicator of test-taking effort in PISA: Country and item-type differences. Psychological Test and Assessment Modeling, 64(3), 304–338.
Rios, J. A. (2021). Improving test-taking effort in low-stakes group-based educational testing: A meta-analysis of interventions. Applied Measurement in Education, 34(2), 85–106. https://doi.org/10.1080/08957347.2021.1890741
Wise, S. L., & Kong, X. (2005). Response time effort: A new measure of examinee motivation in computer-based tests. Applied Measurement in Education, 18(2), 163–183. https://doi.org/10.1207/s15324818ame1802_2
