Of stór hluti þarf sérkennslu

Á Íslandi er óvenjuhátt hlutfall grunnskólanema sem fær sérstakan stuðning eða sérkennslu. Annars staðar í heiminum, til dæmis í Evrópu og Bandaríkjunum, er þetta hlutfall um 10% nemenda, en á Íslandi er þetta hlutfall rúmlega 30% nemenda (Hagstofa Íslands, n.d.).

hlutfall sérkennslu í grunnskólum

Er það eðlilegt?

Ég stórefa það. En það er ekki hægt að rannsaka það, því það er ekki haldið utan um upplýsingar varðandi þetta. Það er t.d. ekki vitað hvaða stuðning þessir nemendur eru að fá. Eru þeir að fá stuðning í stærðfræði, íslensku eða félagsfærni? Það er ekki vitað hversu mikinn stuðning nemendur eru að fá. Þannig getur einn nemandi sem skráður er í þennan hóp fengið stuðning einu sinni yfir önnina, á meðan annar nemandi er með daglegan stuðning.

Það sem þarf að gera, er að halda betur utan um hverjir eru að fá stuðning eða sérkennslu, hversu lengi og hvernig stuðning. Í framhaldinu er hægt að meta hvort að þessi stuðningur sé nægjanlega góður og skili árangri.

Í Menntastefnu 2030, sem hóf innleiðingu 2021, er kveðið á um að veita eigi þrepaskiptan stuðning. Samkvæmt fræðunum felst það í því, að einungis 10% nemenda í bekk ættu að þurfa stuðning eða sérkennslu. Ef þetta hlutfall er hærra en 10% (og 30% er ansi mikið hærra!), þá þarf að skoða alvarlega hvort að kennslan sé að skila árangri. Í einhverjum tilfellum gæti skýringin verið að ekki sé verið að nýta gagnreyndar aðferðir í kennslu og/eða að aðilinn sem sé að kenna sé án kennsluréttinda.

Við þurfum að fara vel með peningana sem fara í menntakerfið okkar. Forsenda þess er að tryggja að nemendur séu að fá gagnreynda gæðakennslu frá menntuðum kennurum. Það að 30% nemenda þurfi stuðning eða sérkennslu er ekki nemendum “að kenna”, heldur þarf að skoða kennsluaðferðir og menntun þeirra sem kenna.

Bestu kveðjur,
Gyða stærðfræðikennari
hjá staerdfraedi.is

PS. Heimild
Hagstofa Íslands. (n.d.). Nemendur sem njóta sérkennslu eða stuðnings 2004–2023. Hagstofa Íslands. https://px.hagstofa.is/pxis/pxweb/is/Samfelag/


Posted

in

by

Tags: