Kennari minn á Menntavísindasviði deildi með okkur grein sem hafði verið í umræðunni, varðandi rannsóknir sem snúa að skóla án aðgreiningar (Barshay, 2025).
Margar rannsóknir síðustu 50 ára hafa sýnt fram á kosti skóla án aðgreiningar. Niðurstöður þeirra rannsókna hafa verið, að nemandi með greiningu sem er á sérdeild, gengur verr námslega heldur en nemandi með greiningu í almennum bekk. Stefnumótanir skólanna hafa síðan byggt á þessum rannsóknum síðustu áratugi.

En virtur prófessor, Douglas Fuchs, vill meina að þegar þessar rannsóknir hafi verið gerðar að þá hafi ekki verið að bera saman jafngilda hópa. Þeir nemendur sem voru á sérdeildum voru oftast með mun meiri hamlanir námslega séð, heldur en þeir nemendur sem voru með einhverjar hamlanir og voru í almennum bekkjum – þess vegna var námslegur árangur nemenda á sérdeildunum verri.
Aðrir hafa gagnrýnt Fuchs og vilja meina að félagslegi þátturinn skipti líka miklu máli, ekki bara námslegi þátturinn.
Í þessari grein sem ég vísa í, þá var loka niðurstaðan sú, að það sem skiptir mestu máli er gæði kennslunnar sem nemandinn fær – en ekki hvar hann fær kennsluna.
T.d. er betra fyrir nemanda að vera á sérdeild ef hann fær betri kennslu og stuðning, en að “henda” honum inn í bekk þar sem hann fær engan stuðning.
Ég vildi óska þess að það væri í gangi ytra mat á grunnskólum landsins. Því þá myndi koma í ljós að nemendur sem eru með greiningar, eru almennt ekki að fá þann stuðning sem þeir eiga rétt á og ættu að fá í almennu bekkjakerfi. T.d. ef nemandi er á einhverfu rófinu og þarf manninn með sér og er settur inn í almennt bekkjakerfi – þá fær hann ekki manninn með sér. Í dag er staðreyndin yfirleitt sú að einungis einn stuðningsfulltrúi á að sjá um nokkra nemendur í bekk.
Ég ætla ekki að gagnrýna skóla án aðgreiningar, en ég ætla að gagnrýna að nemendur eru almennt ekki að fá þann stuðning sem þeir þurfa og eiga rétt á inn í almennu bekkjakerfi. Það má því spyrja sig hvort að skóli án aðgreiningar sé að skila þeim árangri sem allir halda að hann sé að skila.
Bestu kveðjur,
Gyða stærðfræðikennari
hjá staerdfraedi.is
Heimild
Barshay, J. (2025, September). Top scholar says evidence for special education inclusion is ‘fundamentally flawed’. Nomanis, Issue 19. https://www.nomanis.com.au/hubfs/Nomanis%20Issue%2019/NOMANIS%2019_SEPT25_Barshay.pdf
