Er til meðal nemandi?

Ég horfði á áhugavert TedEx Talk í vikunni með manni að nafni Todd Rose sem bar titilinn “Mýtan um meðaltalið” (Rose, 2013). Í þessum fyrirlestri byrjar Todd á að tala um vandamál sem bandaríski flugherinn var að glíma við árið 1952. Flugherinn var með mjög góða flugmenn sem voru að fljúga betri orustuflugvélum, en samt sem áður var árangur þeirra verri. Í fyrstu reyndi flugherinn að kenna flugmönnunum um, síðan flugvélunum og svo flugkennurunum.

Það kom svo í ljós, að vandamálið snéri að flugstjórnarklefanum, en hann var hannaður fyrir meðal flugmanninn. Einn rannsakandi hjá flughernum, Gilbert Daniels, mældi yfir 4.000 flugmenn, eftir 10 víddum (hæð, breidd, þyngd,…) til að kanna hversu margir þeirra uppfylltu meðaltalið í öllum víddum.

Svarið var 0.

Gilbert sannaði þar með að þessi meðal flugmaður var ekki til. Sá sem var með meðalhæð, var ekki endilega með meðalþyngd og sá sem var með meðal búklengd var ekki endilega með meðal lappalengd o.s.frv. Þess vegna, virkaði ekki að hanna flugstjórnarklefa fyrir meðal flugmanninn. Sem sagt, það þýðir lítið að hafa bestu tæki og tækni í heimi ef flugmaðurinn nær ekki almennilega til mikilvægustu tækjanna þegar mest á reynir.

Lausnin fólst í því að banna meðaltalið, sem sagt, neita að kaupa orustuflugvélar sem væru hannaðar fyrir meðal flugmanninn og kröfðust þess að hannaðir væru flugstjórnarklefar sem hentuðu “jöðrunum”. Það þurfti að gera ráð fyrir ýktustu tilvikum í öllum víddum (þyrfti að henta hæsta og minnsta, þyngsta og léttasta,…).

Fyrst sögðu fyrirtækin sem framleiddu flugvélarnar að það væri ekki hægt. En þegar flugherinn neitaði að kaupa vélar, nema með flugstjórnarklefa sem hannaður væri fyrir jaðrana, þá var það allt í einu hægt og það kostaði ekki einu sinni mikinn pening. Það þurfti bara að framleiða sæti sem væru stillanleg!

Í framhaldinu líkti Todd flugstjórnarklefanum við menntakerfið. Þegar árangur nemenda er ekki nógu góður, þá er gott að skella skuldinni á kennara, skólastjórnendur, nemendur eða jafnvel foreldra.

En vandamálið lægi í því að menntakerfið væri hannað fyrir meðal nemandann – sem væri ekki til. Það þyrfti t.d. að sjá til þess að kennsluefni væri hannað fyrir jaðranna, þannig að það henti þeim sem standa höllum fæti og einnig þeim nemendum sem skara fram úr. Ef það er gert, þá mun það kennsluefni þjóna öllum nemendum þar á milli. (Ég tók skjáskot á mínútu 8:10 og þýddi þessar víddir yfir á íslensku).

meðal nemandi

Hann nefndi einnig að þetta væri ekki vonlaust og ekki dýrt. Það þyrfti bara að ákveða að kennsluefnið ætti að ná til jaðranna og gera kröfu á að kennsluefni væri hannað fyrir jaðranna.

Ertu með einhverjar spurningar? Ef svo er, hikaðu ekki við að hafa samband, með því að svara þessum pósti.

Bestu kveðjur,
Gyða stærðfræðikennari
hjá staerdfraedi.is


Heimild
Rose, T. (2013, júní 19). The Myth of Average [Video]. TED Conferences. https://www.youtube.com/watch?v=4eBmyttcfU4


Posted

in

by

Tags: