Sjálfvirkni er jafn mikilvæg í stærðfræði og lestri

Í vikunni sem leið, þá var ég að skoða gagnreyndar aðferðir í lestrarkennslu í tengslum við nám mitt í HÍ. Eitt mikilvægt sem kom þar fram, er að börn sem eru að byrja að læra að lesa þurfa að ná ákveðinni sjálfvirkni í grunn þáttunum til að ná góðri færni í lestri og svo lesskilningi.

Börn byrja á að læra hljóð, þau tengja síðan hljóð við staf, síðan læra þau að tengja saman tvo stafi og læra svo að hljóða sig í gegnum orð til að vita hvernig þau eru borin fram, áður en þau fara að lesa flóknari texta.

sjálfvirkni í stærðfræði

Barn sem er að byrja að læra að lesa og hefur ekki fengið góða kennslu í grunninum, mun eyða allri orkunni í að hljóða sig áfram í gegnum texta. Þetta barn getur ekki á sama tíma skilið hvað það er að lesa, því öll orkan fer í að lesa (eða hljóða) orðin.

Þegar ég var að lesa mig í gegnum fræðin, þá sá ég svo mikla tenginu við stærðfræði. Í dag er ekki í tísku að læra neitt utanbókar í stærðfræði og það er ekki í tísku að nemendur reikni nægjanlegan fjölda dæma til að ná virkilega góðum tökum á efninu, þannig að það fari í sjálfvirka kerfið.

Nemendur sem ströggla með lestur, ströggla líklega af því að þeir hafa ekki náð sjálfvirkni í ákveðinni grunnfærni, sem þarf til að geta lesið og skilið það sem þeir eru að lesa. Á sama hátt eru nemendur sem ströggla með stærðfræði, líklega að ströggla af því að þeir hafa ekki náð að koma í sjálfvirka kerfið þáttum í stærðfræði sem er grunnurinn að því að leysa flóknari dæmi.

Þegar nemendur eru t.d. komnir á það stig að leysa flóknar jöfnur, þá á öll orkan að fara í að vinna með jöfnuhugtakið. En reynslan mín af kennslu í kennslustofu sýnir að nemendur eru að ströggla með jöfnur, af því að þeir vita ekki hvernig þeir eiga að fella niður sviga eða leggja saman bókstafi og tölur – sem er ekki hluti af því að leysa jöfnur, þetta á að vera eitthvað sem er komið inn á sjálfvirka kerfið í heilanum.

Þegar ég segi að nemendur eigi að vera með eitthvað í sjálfvirka kerfinu, þá er ég ekki að segja að nemendur eigi að læra eitthvað utan að eins og páfagaukar – alls ekki. Nemendur eiga að þjálfa færni sína með þeim hætti, að það sem þeir eru að þjálfa, fari á endanum yfir í sjálfvirka kerfið. Þetta eru heilmiklar “heilapælingar” og ég hef skrifað grein um hvernig heilinn virkar, sem þú getur lesið um hér.
​
Sem sagt, nemendur eru ekki að fá þá þjálfun sem þeir þurfa í stærðfræði til að koma því sem þeir eru að læra í sjálfvirka kerfið. Það leiðir til þess að þegar stærðfræðin verður erfiðari, þá eru nemendur að eyða orku í eitthvað sem þeir eiga að kunna án þess að hugsa mikið. Alveg eins og nemendurnir sem skilja ekkert hvað þeir eru að lesa því þeir eyða allri orku í að hljóða sig í gegnum öll orðin. Þeir hafa því enga orku eða úthald í það að læra það sem þeir ættu í raun að vera að læra.

Hvað er hægt að gera í þessu?
Við þurfum að gera okkur grein fyrir, að það læra ekki allir eins. Fyrir suma er meira en nóg að reikna 7 sambærileg dæmi til að ná góðum tökum á nýju efni, á meðan aðrir þurfa að reikna 30 dæmi. Það þarf því, alveg eins og með lestrarkennslu, að fylgjast með framvindu hvers nemanda og tryggja sjálfvirkni í ákveðnum grunni áður en haldið er áfram í flóknara efni sem byggir á þessum grunni

Ég er mjög bjartsýn að niðurstöður úr Matsferli verði til þess að lögð verði meiri áhersla á að þjálfa nemendur í færni, svo þeir hafi tækifæri á að koma því sem þeir læra í sjálfvirka kerfið í heilanum.


Posted

in

by

Tags: