Að kunna 85%

Þegar nemendur eru að æfa sig að reikna, eftir að hafa lesið sýnidæmi eða fylgst með kennara útskýra efni, þá gæti maður haldið að nemendur þyrftu að kunna efnið mjög vel (jafnvel 100%) til að fá sem mest út úr því að reikna dæmin.

En svo er ekki.

Ef efnið er allt of létt, þá leiðist nemendum og þeir læra ekki neitt nýtt. Ef efnið er allt of erfitt, þá nær vinnsluminnið ekki að vinna úr öllum nýju upplýsingunum og nemendur gefast upp.

Það sem kom mér verulega á óvart, er að það er búið að rannsaka besta jafnvægið til að læra nýtt efni (e. the sweet spot for learning). Það er best ef nemendur kunna efnið 85%. Þá er efnið ekki of létt og ekki of erfitt (Wilson, Shenhav, Straccia, & Cohen, 2019).

Að kunna 85%

Það er ágætt að nemendur viti af þessari 85% reglu, því margir nemendur, sérstaklega þessir samviskusömu, þora ekki að reikna eða vinna í dæmum nema vera fyrir fram vissir um að þeir skilji efnið 100% og að þeir geti svarað öllum dæmunum rétt.

Heimild
Wilson, R. C., Shenhav, A., Straccia, M., & Cohen, J. D. (2019). The eighty five percent rule for optimal learning. Nature Communications, 10(1), 4646. https://doi.org/10.1038/s41467-019-12552-4


Posted

in

by

Tags: