Hæfni á kostnað þekkingar

Það eru margar rannsóknir sem benda á að greindarvísitala fólks í þróuðum ríkjum sé að lækka, sem er pínu óhugnanlegt. En ég rakst nýlega á áhugaverða fræðigrein (Oakley o.fl., 2025) sem fjallar um hvað við getum gert í skólakerfinu, sérstaklega grunnskólunum, til að bregðast við þessu.

hæfni vs þekking

Ein af lykilhugmyndunum er sú að minnið skiptir meira máli en við höfum haldið undanfarið. Því meira sem við þjálfum okkur í að leggja hluti á minnið, því fleiri tengingar myndast í heilanum, sem eykur ekki bara þekkingu heldur líka greind.

En núna, þegar við getum flett öllu upp á sekúndubroti, hverfur smám saman viljinn til að muna. Það hefur áhrif á hvernig við lærum, rökræðum og hugsum. Ef við erum sífellt að treysta á Google og Chat GPT í stað þess að hafa ákveðna þekkingu á takteinum, þá höfum við ekki vitsmunalega hæfni til að beita rökhugsun á stór og flókin verkefni.

Í dag leggur grunnskólakerfið mikla áherslu á hæfni, sem þýðir m.a. að geta leitað að upplýsingum og beitt þeim, en minni áherslu á sjálfa þekkinguna. Í Aðalnámskrá grunnskólanna, sem eingöngu gengur út á hæfnivimið, er hæfni skilgreind sem „yfirsýn og geta til að hagnýta þekkingu og leikni“. En hvað ef þekkingin sjálf er orðin of grunn?

Greinarhöfundar halda því fram, þó það þyki gamaldags, að við ættum að endurvekja minnisþjálfun í skólum. Ekki til að leggja áherslu á utanbókarlærdóm í sjálfu sér, heldur til að dýpka skilning og efla hugsun.

Því þó hæfni sé tískuorð í menntunarfræðum, þá má þekkingin alls ekki gleymast, sérstaklega í heimi þar sem tæknin freistar okkar stöðugt til að muna sem minnst.

PS. Í íslenskum grunnskólum er eingöngu talað um hæfniviðmið. En í námsskrá framhaldsskólanna, sem hefur ekki verið uppfærð í marga áratugi, er lagt áherslu á þekkingar-, leikni- og hæfniviðmið.

PSS. Heimild
Oakley, B., Johnston, M., Chen, K.-Z., Jung, E., & Sejnowski, T. (2025). “The Memory  Paradox: Why Our Brains Need Knowledge in an Age of AI.” In The Artificial Intelligence Revolution: Challenges and Opportunities (Springer Nature, forthcoming)
https://papers.ssrn.com/sol3/papers.cfm?abstract_id=5250447&utm_medium=email&utm_source=other&utm_campaign=opencourse.GdeNrll1EeSROyIACtiVvg.announcements~opencourse.GdeNrll1EeSROyIACtiVvg.sDYlfEuhSTiGJc0X4Ew6rA


Posted

in

by

Tags: