Hefur þér einhvern tímann dottið í hug að nemendur í 10. bekk gætu lokið grunnskólastærðfræðinni áður en þeir byrja í framhaldsskóla – með því að taka stöðupróf?
Ef framhaldsskólar myndu bjóða upp á slíkt próf, gætu áhugasamir nemendur, óháð lokaeinkunn í 10. bekk, tryggt sér að komast beint á þrep 2 í stærðfræði, þegar þeir byrja í framhaldsskóla. Þetta gæti verið frábært tækifæri fyrir bæði meðalnemendur og nemendur sem vantar grunn í stærðfræði, sem eru tilbúnir að leggja á sig auka vinnu.

Grunnskólar gætu jafnframt boðið upp á valáfanga í 10. bekk þar sem nemendur undirbúa sig fyrir þetta stöðupróf. Þetta væri þá ekki einungis fyrir „bestu“ nemendurna heldur alla sem hafa áhuga á að styrkja stærðfræðigrunninn sinn og fá auka þjálfun og stuðning.
Hverju myndi þetta breyta?
- Nemendur sem eiga í erfiðleikum í stærðfræði gætu einbeitt sér að því efni, sem skiptir mestu máli fyrir stærðfræðinám í framhaldsskóla.
- Með því að taka stöðupróf, fengju nemendur tækifæri til að fá óháð mat á stöðu þeirra í stærðfræði, mat sem er ekki byggt á verkefnaskilum, fyrri einkunnum eða huglægu mati.
- Þetta gæti verið hvatning fyrir þá sem sjá ekki alveg tilgang með stærðfræðináminu: „Af hverju að læra þetta?“ Jú, til að ná tökum á grunninum og klára grunnskólastærðfræðina.
Það er nú þegar hægt að skrá sig í fjarnám í grunnskólastærðfræði í nokkrum framhaldsskólum og í mörg ár hefur það staðið til boða fyrir sérvalda og sterka nemendur í 10. bekk grunnskóla. En það fjarnám hentar ekki nemendum sem vantar grunn eða standa höllum fæti, því þeir þurfa lengri tíma og meiri stuðning en fjarnámið býður upp á.
Mig langar að sjá fleiri nemendur, sérstaklega þá sem standa höllum fæti í stærðfræði, fá raunverulegt tækifæri til að ná góðum tökum á stærðfræði – og í námi mínu í HÍ, þá er ég meðal annars að kanna grundvöll þess að framhaldsskólar bjóði upp á stöðupróf í grunnskólastærðfræðinni fyrir nemendur í 10. bekk ásamt því að kanna viðhorf foreldra eða forráðamanna til slíkra prófa.
Gætir þú hjálpað mér?
Ég væri ótrúlega þakklát ef þú gætir svarað örstuttri og nafnlausri könnun (30 sek) sem tengist þessu verkefni mínu í HÍ:
Já, ég er til í að svara!
Bestu kveðjur,
Gyða, stærðfræðikennari
hjá stærðfræði.is