Nýjustu greinarnar
-
Glerboxin úr Costco og rýmisgreind
Ég keypti ferhyrnd glerbox með plastlokum í Costco fyrir um ári síðan. Þá gerði ég mér grein fyrir að ég er með svakalega lélega rýmisgreind… Ég er með glerboxin í sér skúffu í eldhúsinu og plastlokin í annarri skúffu. Fyrst vel ég glerbox og svo fer ég og finn viðeigandi plastlok. Það er næstum skammarlegt fyrir…
-
Svindlmiðinn er besti miðinn
Flestir grunnskólar eru með lokapróf í komandi viku og mér fannst því viðeigandi að minnast á eitt próftækniatriði sem er gott að tileinka sér við prófundirbúning. Ég er nokkuð viss um að unglingnum þínum finnist hann þurfa að muna svo mikið af ólíkum aðferðum fyrir stærðfræðipróf, en staðreyndin er sú að yfirleitt er hægt að…
-
Píanó er ekki gott dæmi
„Allir geta lært stærðfræði og allir geta orðið mjög góðir í stærðfræði, en nemendum þarf að langa til þess og þeir þurfa að vera tilbúnir að leggja mikið á sig. Mig langar t.d. alveg til að verða mjög góð á píanó, en ég er bara ekki tilbúin að leggja á mig það sem þarf til að verða góð á…
-
Ertu alveg viss?
Ég var að klára að lesa skemmtilega bók sem heitir Think again eftir Adam Grant. Í bókinni talar höfundur um Davíð Oddsson og Höllu Tómasardóttur – sem kom skemmtilega á óvart en það sem mér fannst áhugavert er þegar höfundurinn talaði um að við ættum að gera meira af því að endurhugsa og aflæra (e.…
-
Kvíðavaldandi margföldunartaflan
Páfagaukalærdómur er ekki stærðfræði og í þessum pistli ætla ég að tala um kvíðavaldandi margföldunartöfluna, því stundum eiga nemendur að læra hana utanað án þess að skilja hana. Nemendur þurfa að fá að læra margföldunartöfluna, sem endurtekna samlangingu, þar sem þeir skilja margföldun og öðlast þannig góðan talnaskilning. Eftir að nemendur hafa náð tökum á og skilja…
-
Mest misskilda fagið
Stærðfræði er oft misskilin og ég held að óvinsældir hennar megi að einhverju leiti rekja til þess.Flestir nemendur halda að maður þurfi að vera fljótur að fatta nýtt efni, eigi að vera snöggur að reikna, nota ákveðna aðferð til að leysa dæmin og helst fá alltaf rétt svör. Margir halda líka að sumir séu bara fæddir…
-
Upp með puttana!
Tíminn líður en lítið breytist Stærðfræðikennsla hefur lítið breyst í skólum frá því ég var í skóla (og líka frá því foreldrar mínir voru í skóla). Í flestum grunnskólum er enn áhersla á að læra margföldunartöfluna utanað (sem eykur á stærðfræðikvíða og hefur lítið með stærðfræði að gera en fínt fyrir þá sem eru góðir í að…
-
Geta lesblindir lært að lesa?
Auðvitað geta lesblindir lært að lesa – við vitum það öll. En geta nemendur með stærðfræðiblindu lært stærðfræði og orðið mjög góðir í stærðfræði? Svarið er já! Ég kenni stærðfræði á framhaldsskólastigi í „raunveruleikanum“. Fyrir um fjórum árum kom til mín nemandi sem hafði dreymt um að verða dýralæknir. En stærðfræðikennarinn hennar í grunnskóla hafði sagt við…
-
Hvað varð um Nicholas?
Allir geta lært stærðfræðiog allir geta orðið góðir í stærðfræði Þetta er slagorðið mitt og ég veit að þetta er satt. En það er samt þannig að það eru ekki allir sem trúa því. Margir halda enn í dag að gáfur hafi eitthvað með velgengni að gera og margir halda að sumir séu bara fæddir góðir í stærðfræði…
-
Gettu betur…. eða Gettu bara!
Á föstudaginn voru úrslit í Gettu betur. Mér finnst rosalega gaman að horfa á þessa spurningaþætti og hef verið að velta fyrir mér nálgun keppenda og hvernig þeir hugsa. Þetta er einhvern vegin svona sem ég sé þetta fyrir mér: Spurning er borin upp. Annað liðið er fyrr til að ýta á bjölluna …en það er ekki endilega af…
-
Til hamingju með daginn !
Dagur skrítna takkans á vasareikninum Flestir vita að skrítni takkinn (eins og margir nemendur mínir hafa kallað hann) á vasareikninum er kallaður pí og er næstum því 3,14. Þess vegna er 14. mars (03.14) hinn alþjóðlegi pí dagur. Hingað til höfum við Íslendingar haldið upp á dag stærðfræðinnar í febrúar. En í ár var ákveðið að framvegis…
-
Eru farin(n) að venjast þessum hristingum?
Vont en það venst Þeir sem búa á suðvesturhorninu hafa eflaust vaknað upp við einhverja skjálfta í nótt. Eftir miðnætti voru fimm skjálftar sem voru yfir 4 á Richter og einn sem var 5 ! Þegar þessi skjálftahrina var að byrja fyrir rúmum tveimur vikum þá voru margir hræddir en flestir eru farnir að venjast þessum hristingi og jafnvel…
