Nýjustu greinarnar

  • Viðhorf mælt

    Í vikunni sem leið var fyrirlestur á vegum Menntavísindasviðs Háskóla Íslands þar sem verið var að greina stöðu læsis í stærðfræði úr nýjustu PISA könnuninni. Mér finnst æðislegt og nauðsynlegt að verið sé að kanna áhuga og viðhorf nemenda til stærðfræði í þessari könnun og einnig að verið sé að skoða hvort tengsl séu milli viðhorfs nemenda…

  • Góður námsmaður

    Ég var að spjalla við kunningja minn í skólasamfélaginu um daginn og við vorum að ræða um tvo nemendur. Í þessu samtali sagði ég að annar nemandinn (köllum hann nemanda A) væri frábær námsmaður en hinn ekki (köllum hann B). Í framhaldinu sagði ég að nemandi B væri með góðan grunn í stærðfræði. „Þú meinar…

  • Skilaboð til nemenda

    Það að reikna dæmi upp úr stærðfræðibók er aðeins einn pínulítill hluti af stærðfræði. En til þess að ná virkilega góðum tökum á stærðfræði er mikilvægt að kenna og fræða nemendur um margt annað sem kveikir áhuga þeirra á stærðfræði, breytir viðhorfi þeirra og fær þá til að trúa því að þeir geti orðið virkilega…

  • Gleðilegt nýtt ár og skák!

    Þetta eru búin að vera mikil spila jól hjá minni fjölskyldu. Ég hef kynnst nýjum borðspilum sem ég hef ekki spilað áður og einnig spilað gömul borðspil með nýju ívafi. Ég hef einnig varið töluverðum tíma í að skoða ný spil í Nexus og Spilavinum ásamt því að lesa umsagnir um þessi spil á netinu.…

  • Viltu taka stutta PISA könnun?

    Ég er enn uppveðruð eftir PISA niðurstöðurnar, þú ert líklega ekki alveg þar, en ég var að þýða og setja upp stutta PISA könnun sem þú eða unglingurinn þinn gæti viljað spreyta sig á.​ Þessi stutta könnun samanstendur af fimm spurningum úr stærðfræðihlutanum í síðustu PISA könnun.​Það er ekki hægt að taka þessa könnun með…

  • PISA, mun eitthvað breytast?

    PISA prófin eru mikið búin að vera í umræðunni síðustu daga, enda kom í ljós, það sem allt of margir vissu að í stefndi, að íslenskum nemendum hefur hrakað svakalega mikið frá síðasta PISA prófi. Eftir að hafa hlustað á helstu fræðimenn ræða niðurstöður þessara prófa, þá eru flestir sammála um að það þarf:– að…

  • Langa eða ætla

    Allir geta lært stærðfræði og allir geta orðið góðir í stærðfræði, en unglingnum þínum þarf að langa til þess að ná tökum á stærðfræði og vera tilbúinn að leggja á sig það sem þarf. Núna er haustönn grunnskólanna senn á enda og margir skólar nýta tækifærið og hafa verkefni eða próf fyrir jólafrí. Margir nemendur…

  • Tímatakmörk í stærðfræðiprófum?

    ​Rannsóknir gefa til kynna að tímamörk í stærðfræðiprófum geti valdið stærðfræði kvíða (e. math anxiety). Stærðfræði kvíði getur síðan, eins og gefur að skilja, haft mjög neikvæð áhrif á viðhorf og árangur nemenda í stærðfræði. Margar rannsóknir hafa sýnt fram á að nemendur sem eiga að leysa sömu verkefni í stærðfræði, gengur mun betur með verkefnin…

  • 40% þora ekki að spyrja

    Ég var að lesa erlenda grein sem fjallaði um rannsókn sem gerð var á 1000 nemendum, sem sýndi að 40% nemenda þora ekki að viðurkenna að þeir skilji ekki það sem kennarar segja í tímum. Þetta vandamál er algengast í stærðfræðitímum. Helsta ástæðan fyrir því var sögð vera sú að nemendur halda að þeir geti…

  • Af hverju má þetta stundum?

    Nemendur sem standa höllum fæti í stærðfræði upplifa oft að sumt megi stundum í stærðfræði eða að sumt virki bara stundum í stærðfræði. Þegar þessi staða kemur upp, þá er mjög mikilvægt að finna sannanir og rannsaka hvers vegna nemendum finnst þetta. Alltaf er nefnilega um misskilning að ræða sem getur, eftir að misskilningurinn hefur verið leiðréttur, haft jákvæð áhrif á…

  • Gleymi því sem ég læri

    Hefur unglingurinn þinn kvartað yfir því að hann sé svo fljótur að gleyma því sem hann lærir? Hann reiknar og reiknar og svo daginn eftir þá man hann ekkert hvað hann gerði deginum áður? Þetta er mjög eðlilegt og yfirleitt þurfum við alltaf að rifja aðeins upp, til að muna allt það sem við lærðum…

  • Víxla tölum

    Orðaforði nemenda í grunnskólum var töluvert í umræðunni fyrir nokkrum vikum. Það má segja að það hafi byrjað með viðtali við Þorgrím Þráinsson í Bítinu á Bylgjunni. Í viðtalinu kom fram að hann hefur miklar áhyggjur af vanlíðan og málfærni nemenda og sér mikinn mun á líðan og málfærni nemenda í skólum þar sem farsímanotkun er…