Category: Annað

  • Tvö atriði til að bæta einbeitingu

    Ég hef áður talað um að 1 klukkutími sé ekki sama og 1 klukkutími í merkingunni að klukkutími fyrir hádegi jafnast ekki á við klukkutíma seint um kvöld t.d. þegar kemur að heimalærdómi Það er því mikilvægt að unglingurinn þinn átti sig á því þegar það kemur að því að læra heima eða læra undir próf, þá…

  • Eftir ákvörðun eru aðrar spurningar

    Frumstæðasti hluti heilans er svokallaður eðluheili (e. reptilian brain). Eitt af hans hlutverkum er að forða okkur frá hættu, en hann hefur því miður endurskilgreint hvað er hættulegt. Hér áður fyrr var það hættan við að verða étinn af ljóni, en núna getur hættan verið að setjast niður og reikna stærðfræði. Eðluheilinn er því stanslaust…

  • Eigum við að hvetja nemendur til að herma?

    Ég hef áður vitnað í Angelu Duckworth (sem skrifaði bókina Grit), en hún var spurð “Hvaða ráð gefur þú nemendum sem kemur þeim á óvart”. Hún svaraði að nemendur væru alltaf jafn hissa þegar hún segir þeim að herma eftir öðrum. Ekki herma þannig að þeir séu að svindla, heldur skoða hvað aðrir hafa gert eða hvernig…

  • Hvað finnst þér um stress?

    Hvaða kemur upp í hugann þegar þú hugsar um orðið stress? Hvað finnst þér um stress?Þú mátt endilega spá í þessu örlitla stund áður en þú lest áfram. .. Þegar ég hugsa um stress, þá kemur upp í hugann prófkvíði sem margir nemendur glíma við, en einnig hvernig stress getur haft jákvæð áhrif á nemendur í…

  • Má hrósa fyrir hvað sem er?

    Allir unglingar vilja hrós svo ef við sjáum hegðun sem okkur langar að endurtaki sig þá verðum við að vera útsjónarsöm og grípa tækifærið og hrósa. Því þá eru miklar líkur á að unglingurinn endurtaki hegðunina til að fá aftur hrós. En við verðum samt að fara mjög varlega í það fyrir hvað við erum…

  • Rannsóknarvinna og Post-it miði

    Vissir þú að stærðfræði snýst oft um væntingastjórnun. Þó svo ég noti ekki hugtakið væntingastjórnun á námskeiðunum hjá mér, þá er ég að kenna nemendum að nálgast verkefnin með ákveðið viðhorf. Stærðfræðiverkefni eru stundum eins og bíómyndir. Ef einhver ný mynd kemur út og þú heyrir að myndin sé ÆÐI, þá ferðu að hafa háar…

  • Líkamsstaða hefur áhrif

    Í dag ætla ég að fjalla um hvernig líkamsstaða hefur áhrif – bæði jákvæð og neikvæð. Rannsóknir hafa sýnt að þegar við stöndum eins og súpermann (upprétt, rétt rúmlega axlarbreidd á milli lappa með hendur á mjöðmum) eykst sjálfstraust okkar og margar rannsóknir hafa sýnt fram á að ákveðnar líkamsstöður geta haft jákvæð og neikvæð…

  • Fimm tegundir frestunar

    Ég hef skrifað áður um frestun, en hef þá verið að skoða hvers vegna við frestum og hvað sé til ráða. En í stuttu máli sagt að þá frestum við út af tilhugsuninni við að gera það sem við þurfum að gera – en ekki endilega af því að okkur finnist það leiðinlegt. Því um leið og við…

  • Framhaldsskólinn og háskólanám

    Undirbýr framhaldskólinn nemendur nægjanlega vel fyrir háskólanám eftir styttingu framhaldsskólans? Fyrir stuttu síðan skrifaði ég pistil um framtíð stærðfræðinnar, en var þá fyrst og fremst að tala út frá grunnskólanum. En í stuttu máli kom þar fram að ég hef verulegar áhyggjur af menntun barna í grunnskóla, sérstaklega sem snýr að stærðfræði. Það hefur svo mikið…

  • Ákveða fyrst, finna svo út hvernig

    Þegar við viljum ná einhverju markmiði í lífinu, þá er best að ákveða fyrst markmiðið og finna svo út hvernig við náum markmiðinu. Ef heilinn veit að við ætlum að ná þessu markmiði, þá getur hann verið ótrúlega útsjónarsamur að finna leiðir til þess. Segjum t.d. að ég ætli að ganga í fyrirtæki og safna…

  • Eru límmiðar hvetjandi?

    Gætu límmiðar virkað hvetjandi á nemendur í 10. bekk? Það var einmitt spurning sem ég spurði mig þegar ég var að kenna unglingum í 10. bekk árið 2007. Ég hafði verið að reka hugbúnaðarfyrirtæki sem var að fara í gegnum eigendaskipti og ég var byrjuð að undirbúa flutning til Bandaríkjanna þegar ég sá auglýsta tímabundna…

  • Framtíð stærðfræðinnar

    Það er mikið af foreldrum búnir að hafa samband við mig síðustu daga af því að þeir vita hreinlega ekki hvar barnið þeirra eða unglingur stendur í stærðfræði og ég velti fyrir mér hver sé framtíð stærðfræðinnar hérna á Íslandi. Þetta var töluvert auðveldara fyrir örfáum árum, en þá vissu foreldrar nákvæmlega hvar barnið þeirra…