Stærðfræði.is - námskeið á netinu frá árinu 2013
Áttu ungling í 10. bekk?
Er hann að fá undir B í stærðfræði?
Vissir þú að allt undir B í lokaeinkunn í stærðfræði í 10. bekk telst fall í stærðfræði þegar kemur að inntöku í framhaldsskóla?
Á námskeiðinu hjá mér þá fer ég ítarlega í þann grunn sem nemendur í 10. bekk þurfa að hafa, ásamt því að fara yfir valið efni sem eingöngu er kennt í 10. bekk.
Kennslan hjá mér er með áherslu á að styrkja sjálfstraust nemenda í stærðfræði, fá þá til að tileinka sér stærðfræði viðhorf og þjálfa þrautseigjuna.
Lokaeinkunn í stærðfræði í 10. bekk skiptir máli og hefur áhrif á hvaða framhaldsskóla nemendur geta sótt um og einnig hvort þeir geti byrjað í framhaldsskólastærðfræði eða þurfi að byrja á grunnskólastærðfræði.
Nemendur sem ná ekki B í stærðfræði í lokaeinkunn í 10. bekk geta ekki byrjað í framhaldsskólastærðfræði í framhaldsskóla og geta almennt ekki sótt um í skóla með bekkjarkerfi. Nemendur sem fá C+ eða C þurfa að byrja á því að taka einn grunnskólaáfanga í framhaldsskóla áður en þeir fara í framhaldsskólastærðfræði. Nemendur sem fá D+ eða D þurfa að taka tvo grunnskólaáfanga í framhaldsskóla áður en þeir fara í framhaldsskólastærðfræði.
Nemendur sem standa höllum fæti í stærðfræði í upphafi 10. bekkjar geta náð mjög góðum tökum á stærðfræði og útskrifast með B eða hærra í stærðfræði.
Það er þó mikilvægt að nemendum langi að standa sig og séu tilbúnir að leggja á sig vinnuna sem þarf til þess.
Auðveldasta leiðin til að fá nemendur til þess að ná miklum árangri í stærðfræði, er að breyta viðhorfi þeirra til stærðfræði.
Ímyndaðu þér að vera kominn á réttan stað í stærðfræði. Þú ert búinn að ná tökum á helstu aðferðum sem verið er að nota í stærðfræði og þarft ekki lengur að vera í þeirri stöðu að kunna ekki eitthvað efni sem búið er að fara yfir.
Þú ert líka búinn að átta þig á því að þú getur fullt í stærðfræði og getur orðið mjög góður í stærðfræði!
Það er góð tilfinning að vita af því að unglingurinn þinn er búinn að fara markvisst yfir helstu þætti í stærðfræði sem skipta máli fyrir áframhaldandi stærðfræðinám. Hann er ekki lengur eftirá og er búinn að ná góðum tökum á grunn þáttum í stærðfræðinni. Þú hefur fundið að bæði viðhorf hans til stærðfræði er jákvæðara og sjálfstraustið hefur aukist.
Sem unglingur barðist ég við mikinn prófkvíða og lestrarörðugleika þannig að ég veit hvernig það er að fá ekki nægan undirbúning og skilning á mínum vanda, sérstaklega í stærðfræði. Í stað þess að gefast upp þá lærði ég að verða stærðfræðikennari og í því námi lærði ég að takast á við mína eigin námserfiðleika sem og að kenna börnum og unglingum stærðfræði á uppbyggjandi og skemmtilegan hátt.
Ég veit að ef mér hefði staðið til boða myndbandakennsla þegar ég var í grunn- og framhaldsskóla þá hefði námið orðið mun auðveldara fyrir mig.
Ég hef verið að kenna stærðfræðinámskeið á netinu frá árinu 2013 og síðan þá hef ég lagt mikla áherslu á að kynna mér nýjar rannsóknir í taugavísindum og stærðfræðinámi, hvernig hægt er að breyta viðhorfi nemenda og leiðir til að hvetja nemendur áfram í námi á netinu.
Námskeiðið fer eingöngu fram á netinu þar sem hver nemandi fær aðgang að sínu persónulega námskeiðssvæði.
Efnið sem ég fer yfir á þessu námskeiði er mikið og því skiptir máli að nemendur séu tilbúnir að vinna daglega, virka daga, eftir sérstakri vikulegri áætlun sem ég gef út.
Námskeiðið er fjórar vikur.
Í upphafi hverrar viku fá nemendur aðgang að nýju efni sem þeir eiga að vinna í komandi viku.
Ég er með kennslumyndbönd fyrir hvert efni,en síðan eiga nemendur sjálfir að reikna og æfa sig á gagnvirkum æfingavef.
Nemendur þurfa að geta reiknað í 30-60 mínútur daglega (mánudaga til föstudaga).
Ég sendi daglega tölvupóst á nemendur (og foreldra) þar sem ég minni þá á að vinna í námskeiðinu ásamt því að hvetja þau áfram.
Valið efni úr 8., 9. og 10. bekk
Ég valdi efni í stærðfræði úr 8., 9. og 10. bekk sem ég tel vera mikilvægustu þætti stærðfræðinnar sem skipta miklu máli fyrir 10. bekkinn og áframhaldandi stærðfræðinám. Efnið sem ég fer yfir (allt á myndbandaformi) er meðal annars: almenn brot, algebra, jöfnur, rúmfræði o.fl.
Yfirlitsblöð í hverri viku
Nemendur fá yfirlitsblöð í hverri viku þannig að þeir hafa gott yfirlit yfir efnið sem þeir eru að fara yfir. Þessi yfirlitsblöð nýtast einnig sem glósublöð, þar sem búið er að skrá helstu atriðin inn á þau.
Hvatningar myndbönd í hverri viku
Nemendur fá hvatningar myndbönd fyrir hverja viku þar sem ég fer meðal annars yfir hvernig sé best að vinna efni vikunnar ásamt því að hvetja þau áfram.
Námstækni myndband í upphafi hverrar viku
Í upphafi námskeiðsins er ég með námstæknimyndband til þess að tryggja að þau nái að vinna markvisst í efni námskeiðsins og fái sem mest út úr því.
Gagnvirkur æfingavefur
Nemendur fá aðgang að gagnvirkum æfingavef þar sem þeir æfa sig í því efni sem ég fer yfir í kennslumyndböndunum.
Námskeiðsvefur
Nemendur hafa aðgang að öllu efni á námskeiðsvefnum í mánuð eftir að námskeiðinu lýkur.
Hvatning og aðhald
Námskeiðið byggir á því að nemendur reikna í 30-60 mínútur á dag, fimm daga vikunnar. Ég sendi tölvupósta á nemendur (og foreldra) og minni þá á að vinna í námskeiðinu ásamt því að hvetja þá áfram með ýmsum fróðleik.
Hvernig veit ég hvort að þetta námskeið henti mínum unglingi?
Hann þarf að langa að taka þetta námskeið. Sýndu honum kynningarmyndbandið á þessari síðu og ef hann hefur áhuga og er tilbúinn að verja 30 - 60 mínútum á dag (5 daga vikunnar) í 4 vikur - þá er þetta námskeið akkúrat fyrir hann.
Er þetta námskeið eingöngu fyrir nemendur sem eru að fara í 10. bekk?
Þetta námskeið er fyrst og fremst hugsað fyrir nemendur sem eru að fara í 10. bekk. Ég er með námskeið fyrir nemendur í 7. - 10. bekk og best er að velja námskeið miðað við viðeigandi bekk.
Unglingurinn minn er mikið eftirá í stærðfræði. Er þetta námskeið of erfitt fyrir hann?
Alls ekki. Á þessu námskeiði fer ég vel í grunninn og er með ítarleg kennslumyndbönd. Ef nemendur standa höllum fæti í stærðfræði er mikilvægt að þeir fari ekki of hratt yfir efnið og vinni efnið jafnvel hægar en áætlunin gerir ráð fyrir.
Unglingnum mínum gengur vel í stærðfræði. Er þetta námskeið of létt fyrir hann?
Þetta námskeið er fyrir alla nemendur í 10. bekk sem vilja bæta sig í stærðfræði. Nemendur vinna verkefni á gagnvirkum æfingavef, ef þeim gengur vel, þá fá þeir erfiðari verkefni, þess vegna hentar þetta líka nemendum sem hafa góðan grunn í stærðfræði. Ef þú átt ungling sem er sterkur í stærðfræði og þú veist að honum langar að bæta sig og vill fá betri æfingu og skilning - þá er þetta námskeið fyrir hann. Ef viðhorf hans er þannig að honum finnst hann kunna allt og skilja allt - þá hentar þetta námskeið alls ekki.
Unglingurinn minn fékk D í stærðfræði síðasta vor. Er raunhæft að hann geti fengið B eða hærra í næstu prófum?
Algjörlega! Nemendur hafa náð ótrúlega miklum árangri á þessum námskeiðum. Ef hann er tilbúinn að leggja mikið á sig, þá er það hægt - ekki spurning. Það sem skiptir mestu máli er að honum langi að bæta sig í stærðfræði og sé tilbúinn að vinna mikið til að ná því marki.
Fjölskyldan er að fara í sumarfrí og hann getur ekki sinnt náminu allar 4 vikurnar
Það er hægt að pása námskeiðið í eina viku (mán. til sun.) á meðan námskeiðinu stendur. Ef það hentar að pása eina viku vegna sumarleyfis, þá klárar unglingurinn þinn viku seinna en gert var ráð fyrir. Mikilvægt er að láta vita í upphafi námskeiðs ef pása þarf námskeiðið.
Þarf ég (sem foreldri) að kunna eitthvað í stærðfræði?
Nei, alls ekki. Þú þarft ekki að hjálpa þínum unglingi með verkefnin á námskeiðinu. Það eina sem þú getur aðstoðað með er að aðstoða hann að taka frá tíma til að vinna í efni námskeiðsins.
Þetta námskeið er 4 vikur og kostar 39.900.
Til að þið gerið ykkur betur grein fyrir verðinu á námskeiðunum, þá er gott að skoða eftirfarandi upplýsingar: Einn aukatími í stærðfræði á viku, í 4 vikur kostar ( 4 x 10.200): 40.800
Allt kennsluefnið er á myndbandaformi, sem nemendur geta spilað eins oft og þeir þurfa. Síðan mun ég vísa yfir á gagnvirkan æfingavef í þeim dæmum sem við á, til þess að nemendur geti náð góðum tökum á því efni sem ég legg fyrir.
4 vikna námskeið
í orðsins fyllstu merkingu
Nemendur horfa á kennslumyndböndin með því að stoppa eða horfa aftur ef með þarf. Þegar nemendur telja sig skilja efnið þá fara þeir á gagnvirkan æfingavef og æfa sig.
Nemendur æfa sig í því efni sem ég fór yfir á gagnvirkum æfingavef. Ef nemendum gengur ekki nógu vel þá helst erfiðleikastig æfinganna, ef nemendum gengur vel verða æfingarnar erfiðari.
Ég fylgist með vinnu nemenda á æfingavefnum og veiti hverjum nemanda endurgjöf á þá vinnu í formi jákvæðrar styrkingar.
Það er ekki auðvelt að læra grunninn í stærðfræði á stuttum tíma, en með markvissri kennslu, miklum áhuga nemenda og vinnusemi er hægt að gera kraftaverk á þessu 4 vikna átaksnámskeiði.
Stærðfræði er ekki eitthvað sem þú lærir með stuttum fyrirvara, en reynsla mín af þessum námskeiðum síðustu ár er sú að nemendur geta náð miklum árangri á þessum 4 vikum.
Ástæðan fyrir því að ég byrjaði með þessi námskeið fyrir nemendur í 10. bekk var sú að það skiptir miklu máli upp á inntöku í framhaldsskólana hvort nemendur fái B eða C+ í einkunn. Oft er lítill munur námslega á nemendum sem fá B og C+ og því til mikils að vinna að leggja aukalega á sig til að fá B í lokaeinkunn í stærðfræði.