Smelltu á hnappinn hérna fyrir neðan, skráðu netfangið þitt og ég sendi þér strax fría myndbandið
Nafn þitt og netfang verður skráð á póstlista stærðfræði.is Gögnin þín eru vistuð í samræmi við persónuverndarstefnu stærðfræði.is. Þú getur afskráð þig af póstlista stærðfræði.is hvenær sem er.
FRÍTT myndband fyrir foreldra:
Hvað þarf til að ná góðum tökum á stærðfræði?
Skráðu þig fyrir fríu myndbandi þar sem ég fer meðal annars yfir:
Ég heiti Gyða og er stærðfræðikennari.
Ég hef verið að með námskeið á stærðfræði.is fyrir unglingastig grunnskóla frá árinu 2013, ásamt því að kenna stærðfræði á framhaldsskólastigi. Á þeim tíma hef ég kafað djúpt í rannsóknir á námi og kennslu.
Kennslan mín byggir í dag á raunprófuðum kennsluaðferðum úr menntunarfræðum, hugrænni sálfræði og taugavísindum. Það þýðir meðal annars að ég legg áherslu á skýra og skipulagða kennslu og markvissa þjálfun í grunnfærni.
Í kennslunni minni legg ég einnig áherslu á að fræða nemendur um virkni heilans og fá nemendur til að hugsa um hvernig þeir hugsa og taka ábyrgð á eigin námi.
Öll geta lært stærðfræði og öll geta orðið góð í stærðfræði, en það gerist ekki af sjálfu sér. Nemendur þurfa raunprófaðar kennsluaðferðir og stuðning. Námskeiðin mín eru hönnuð til að veita þeim einmitt það.
Ég er með B.Ed. gráðu í kennslufræðum (stærðfræði og náttúrufræði), B.Sc. í tölvunarfræði og M.A. í mannauðsstjórnun, og hef kennsluréttindi bæði sem grunn- og framhaldsskólakennari.
Ég stofnaði stærðfræði.is í mars árið 2013 og síðan þá hef ég verið að kenna námskeið á netinu fyrir nemendur í 7. - 10. bekk.
Höfundaréttur © 2026 - Gyða Guðjónsdóttir - stærðfræði.is - Persónuverndarstefna