stærðfræði.is

stærðfræðinámskeið á netinu frá árinu 2013


Smelltu á hnappinn hérna fyrir neðan, skráðu netfangið þitt og ég sendi þér strax fría myndbandið

Nafn þitt og netfang verður skráð á póstlista stærðfræði.is Gögnin þín eru vistuð í samræmi við persónuverndarstefnu stærðfræði.is. Þú getur afskráð þig af póstlista stærðfræði.is hvenær sem er.

FRÍTT myndband fyrir foreldra:

Hvað þarf til að ná góðum tökum á stærðfræði?

Skráðu þig fyrir fríu myndbandi þar sem ég fer meðal annars yfir:

Þrennt sem þarf að vera til staðar til að unglingurinn þinn hafi forsendur til þess að ná góðum tökum á stærðfræði (og hvað þú mátt ekki gera)
Hvaða eini þáttur skiptir mestu máli til að ná árangri í stærðfræði (sem kemur flestum á óvart)
6 ráð sem þú getur nýtt þér strax, til að styrkja þinn ungling í stærðfræði (án þess að þurfa að kenna honum stærðfræði)

Gyða stærðfræðikennari

Gyða stærðfræðikennari

Hver er ég?

Ég heiti Gyða og er stærðfræðikennari.

Markmið mitt er ekki bara að kenna stærðfræði heldur líka að styrkja sjálfstraust nemenda í stærðfræði. Stór hluti af minni kennslu í námskeiðunum er að vinna með viðhorf nemenda til stærðfræði t.d. með því að kenna þeim að tileinka sér stærðfræði viðhorf, þjálfa þrautseigju og kenna þeim hvernig heilinn þeirra virkar ásamt námstækni!

Ég veit að öll geta lært stærðfræði og öll geta orðið mjög góð í stærðfræði. Þegar nemendur átta sig á hvað þeir þurfa að gera til að ná árangri í stærðfræði breytist oft viðhorf þeirra til stærðfræði.

Ég er stærðfræðikennari með réttindi til að kenna bæði í grunn- og framhaldsskóla og hef áratuga reynslu af því að kenna stærðfræði í skólum.

Ég stofnaði stærðfræði.is í mars árið 2013 og síðan þá hef ég verið að kenna námskeið á netinu fyrir nemendur í 7. - 10. bekk.


Höfundaréttur © 2025 - Gyða Guðjónsdóttir - stærðfræði.is - Persónuverndarstefna